Fyrir liggja drög að samningi milli Sýndarveruleika ehf. og Videosport ehf. um aðkomu hins síðari að rekstri þess fyrrnefnda að Aðalgötu 21a og 21b á Sauðárkróki. Félögin hafa óskað eftir að sveitarfélagið taki afstöðu til samningsdraganna.
Í inngangsgrein samstarfssamnings milli sveitarfélagsins og Sýndarveruleika dags. 02.03.2018 kemur fram að samstarfið snúi að hönnun og uppsetningu safns um víkingasögu Íslands sem hafi tengingu við Skagafjörð. Muni safnið sérhæfa sig í sýndarveruleikaupplifun með áherslu á söguviðburði úr Skagafirði, sérstaklega, en ekki einskorðaða við Örlygsstaðabardaga. Í samningnum er gert ráð fyrir að veitingasala verði rekin í húsinu af hálfu Sýndarveruleika ehf.
Samkvæmt 8. gr. samstarfssamningsins má hvorugur samningsaðila "framselja nein réttindi eða skyldur samkvæmt samningnum eða þeim skjölum sem vísað er til í honum". Í 2. gr. samstarfssamningsins kemur fram að gerður verði leigusamningur milli félagsins og sveitarfélagsins til 30 ára um húsnæði undir starfsemina sem verði endurgjaldslaust fyrstu 15 árin en með 50% afslætti síðari 15 árin undir starfsemi félagsins. Kemur fram í greininni að réttindi og skyldur skv. leigusamningnum séu óframseljanleg og óheimil án skriflegs samþykkis leigusala. Í húsaleigusamningi milli sveitarfélagsins og Sýndarveruleika ehf., um Aðalgötu 21a og 21b, sem sveitarfélagið undirritaði 29.03.2019, er þetta áréttað og kveðið á um að framsalsbannið gildi fyrir báða aðila.
Samkvæmt bókun B við samstarfssamninginn sem undirrituð var hinn 20.12.2018 er gert ráð fyrir að starfsmenn sveitarfélagsins í umræddu húsi hafi það hlutverk að miðla upplýsingum um Skagafjörð til ferðamanna en jafnframt skulu þeir vinna við sölu- og upplýsingatengda þjónustu tengda starfsemi Sýndarveruleika í framangreindu húsnæði og ferðamennsku á svæðinu.
Byggðarráð bendir á að hinn sérstaki tilgangur með samstarfi við Sýndarveruleika ehf., þar sem nýta skyldi nýsköpun við að koma ferðamannaiðnaði í sveitarfélaginu til vænlegri vegar, geti réttlætt að Sýndarveruleika ehf. séu færð þau réttindi og skyldur sem mælt er fyrir um í framangreindum samningum. Þær framsalstakmarkanir sem um þetta gilda eru því mikilvægar til þess að koma í veg fyrir að slík réttindi og skyldur, einkum réttindi, séu veitt aðila sem ekki ber slíka höfuðábyrgð á umræddu verkefni og Sýndarveruleiki gerir. Það er samhljóða álit byggðarráðs að framangreind samningsdrög, sem ekki eru undirrituð, geri ráð fyrir framsali sem fari í bága við ákvæði umræddra samninga og hafnar samhljóða að veita samþykki sitt fyrir þeim.
Einnig bendir byggðarráð á að engin trygging sé fyrir því að í umræddu skjali sem er óundirritað feli í raun í sér samkomulag milli aðilanna.