Lögð fram til kynningar tilkynning frá forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands um ákvörðun um að hætta varanlega með læknamóttöku á Hofsósi en ekki hefur verið þar móttaka síðan í apríl 2025. Ákvörðunin byggir á nokkrum meginástæðum, m.a. þeim, að þeir sem koma í viðtöl í móttökunni á Hofsósi þurfi oftar en ekki að koma hvort eð er á Sauðárkrók fyrir apótek, röntgen, blóðprufur o.s.frv. og því hægt að koma öllu slíku fyrir í sömu ferð, að hægt sé að veita betri þjónustu komi einstaklingar á Sauðárkrók, að erfitt sé að senda sérfræðing frá Sauðárkróki þegar færri læknar eru þar við störf, að núverandi húsnæði á Hofsósi sé ófullnægjandi, að HSN er rekið með halla og stöðugt þurfi að rýna í starfsemina af þeim sökum.
Byggðarráð Skagafjarðar harmar að til þessarar ákvörðunar HSN þurfi að koma og felur sveitarstjóra að senda bréf til forstjóra HSN og heilbrigðisráðherra til að mótmæla ákvörðuninni og ónægum fjárveitingum til HSN.