Fara í efni

Frumvarp til sveitarstjórnarlaga

Málsnúmer 2603069

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 185. fundur - 12.03.2026

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 505. mál, Sveitarstjórnarlög. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 20. mars nk.

Byggðarráð Skagafjarðar fagnar frumvarpi til sveitarstjórnarlaga og mörgum þeirra breytinga sem þar er verið að leggja til að lögfesta en áréttar eftirfarandi:

Skýra þyrfti betur heimild ráðherra í fjármálakafla frumvarpsins, til að undanskilja tilteknar skuldir eða skuldbindingar þannig að þær hafi engin eða aðeins hlutfallsleg áhrif við útreikning á skuldaviðmiði og jafnvægisreglu.
Byggðasamlög og félög með ótakmarkaða ábyrgð sveitarfélaga, þar á meðal eignarhlutir í landshlutasamtökum, verði færð úr B-hluta í C-hluta reikningsskila. Í frumvarpinu er C-hluti skilgreindur sem félög með takmarkaða ábyrgð sem starfa á markaði, en sú skilgreining útilokar félög sem bera ótakmarkaða ábyrgð aðildarsveitarfélaga. Byggðarráð telur mikilvægt að þessi félög falli utan A- og B-hluta, þar sem núverandi flokkun í B-hluta skekkir ársreikning sveitarfélagsins. Þetta hefur áhrif á lykiltölur eins og handbært fé og veltufjármuni, og gefur ranga mynd af fjárhagslegri getu sveitarfélagsins til skuldasöfnunar og framkvæmda. Þrátt fyrir að þessi félög séu að mestu sjálfbær og rekin sjálfstætt, eru skuldbindingar þeirra teknar með í reikninginn, sem getur takmarkað fjárhagslegt svigrúm Skagafjarðar.
Lækkun þröskulds fyrir skyldu til að framkvæma mat á áhrifum fjárfestinga, lántöku og ábyrgða úr 20% í 10% af skatttekjum er ansi bratt. Þó markmiðið um vandað mat sé í sjálfu sér jákvætt. Viðvörunarskylda við 10% mörkum þýðir að mun fleiri verkefni falla undir áhrifamat, sem getur leitt til aukins kostnaðar vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu og aukins vinnuálags innan stjórnsýslunnar. Byggðarráð Skagafjarðar hvetur til þess að þröskuldurinn verði endurskoðaður með hliðsjón af raunhæfu svigrúmi sveitarfélaga til að sinna lögbundnum verkefnum án óhóflegs kostnaðar og flækjustigs.