Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 56/2026, "Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks". Umsagnarfrestur er til og með 26.03. 2026.
Markmið frumvarpsins er að stytta afgreiðslutíma og auka fyrirsjáanleika við uppbyggingu raforkuinnviða. Þetta verður m.a. gert með því að tryggja að ágreiningur um bótafjárhæð eða lögmæti eignarnáms verði ekki sjálfkrafa til þess að fresta nauðsynlegum framkvæmdum, að því gefnu að réttindi landeigenda séu tryggð með fullnægjandi hætti. Áformað er að breyta raforkulögum á þann veg að heimildir sérleyfisfyrirtækja (Landsnets og dreifiveitna) verði samræmdar heimildum fjarskiptafyrirtækja samkvæmt lögum um fjarskipti, sem kveður á um að landeiganda sé skylt að þola lagningu flutningsvirkja og mannvirkja ef nauðsyn krefur, gegn fullum bótum fyrir sannanlegt tjón. Áformin snerta 72. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttar. Skilyrði eignarnáms um almenningsþörf og fullt verð haldast óbreytt.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir markmið um einföldun stjórnsýslu og regluverks en áform um skilvirkari málsmeðferð innviðaframkvæmda á borð við flutningskerfi raforku voru í stjórnarsáttmála fyrri ríkisstjórnar, líkt og þeirrar núverandi. Byggðarráð bendir eigi að síður á að friðhelgi eignarréttar er tryggður í stjórnarskrá Íslands og því þarf að vanda virkilega vel til mögulegra breytinga á lögum hvað þetta varðar. Tryggja þarf að hvati orkufyrirtækja til samráðs og samninga haldist og að eignarréttarákvæði stjórnarskrár verði ekki ógnað.