Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 45

Málsnúmer 2603018F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026

Fundargerð 45. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 26. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 48. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir og Hrund Pétursdóttir kvöddu sér hljóðs.
  • .1 2508070 Sæluvika 2026
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 45 Á setningu Sæluviku Skagfirðinga 2026 verða Samfélagsverðlaun Skagafjarðar veitt í ellefta sinn.

    Verðlaunin eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.

    Umræður fóru fram um þær fjölmörgu og afar góðu tilnefningar sem bárust inn til Samfélagsverðlauna Skagafjarðar 2026.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að veita Karli Lúðvíkssyni samfélagsverðlaunin í ár, en hann hefur til fjölda ára unnið óeigingjarnt starf við eflingu lýðheilsu hjá samferðafólki sínu. Í innsendri tilnefningu kom sérstaklega fram að hann væri óþreytandi við að hvetja fólk til að stunda íþróttir til bættrar heilsu, en hann hefur haft frumkvæði að fjölbreyttu íþróttastarfi fyrir öll um árabil. Störf hans með fötluðum einstaklingum hefur verið hans hjartans mál í gegnum tíðina, bæði í kennslu í sumarbúðastarfi og í öðrum verkefnum og samveru. Þá hefur hann einnig verið í sjálfboðastarfi hjá Rauða krossinum og Kiwanisklúbbnum Drangey.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin óskar Karli innilega til hamingju með samfélagsverðlaunin í ár og færir honum sérstakar þakkir fyrir sitt framlag til samfélagsins.

    Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 45 Baldur Hrafn Björnsson vék af fundi.

    Framlagðar styrkbeiðnir sem bárust inn vegna viðburða á Sæluviku 2026.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að veita eftirfarandi aðilum styrk:

    Gunnar Sigurðsson fyrir hönd Skagfirska Kammerkórsins, fyrir tónleika að upphæð 100.000 kr.
    Þorgrímur Ómar Tavsen fyrir hönd Smábátasafnsins, fyrir veitingar á Sæluviku að upphæð 100.000 kr.
    Ásta Ólöf Jónsdóttir fyrir hönd Pilsaþyts, fyrir dansiball að upphæð 50.000 kr.
    Elín Jónsdóttir fyrir hönd Kvennakórsins Sóldísa fyrir tónleika að upphæð 100.000 kr.
    Þórhildur M. Jónsdóttir fyrir hönd Farskólans, fyrir viðburðinn Bragðferðalag um heiminn - matur og menning að upphæð 200.000 kr.
    Eyþór Árnason, fyrir ljóðaupplestur víðsvegar um Skagafjörð að upphæð 50.000 kr.

    Saga Sjöfn Ragnarsdóttir fyrir hönd Leikfélags Sauðárkróks fyrir leiksýningu og Sigurlína Erla Magnúsdóttir fyrir hönd Flugu hf. vegna reiðhallarsýningar sóttu einnig um styrki. Nefndin vekur athygli á að í gildi eru samstarfssamningar milli þessar tveggja umsækjenda og sveitarfélagsins þar sem kveðið er á um stuðning sveitarfélagsins við starfsemi þeirra. Með hliðsjón af þeim samningum og þeim ramma sem nefndin setur um styrktarupphæðir fyrir Sæluvikuna, telur nefndin sér ekki fært að verða við styrkbeiðnum þeirra að þessu sinni.
    Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 45 Umræður um merkingar og menningarvitund hjá sveitarfélaginu.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmanni nefndarinnar að vinna að ramma fyrir verkefnið. Nefndin leggur til að ár hvert, í tengslum við Sæluviku verði með einum eða öðrum hætti vakin athygli á verkum skagfirskra listarmanna til að auka menningarvitund í sveitarfélaginu.
    Nefndin leggur áherslu á að gert verði ráð fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun ár hvert.
    Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 45 Umræður um viðurkenningu til listamanns Skagafjarðar.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að veita viðurkenningu til listamanns Skagafjarðar.
    Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar að útbúa ramma utan um verkefnið í samræmi við umræður fundarins og leggja hann fyrir næsta fund.
    Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 45 Lögð fram til kynningar fundargerð frá aðalfundi Cruise Iceland. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.