Byggðarráð Skagafjarðar - 181
Málsnúmer 2602007F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 46. fundur - 25.02.2026
Fundargerð 181. fundar byggðarráðs frá 11. febrúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 46. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 181 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 181. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 181 Lögð fram beiðni um gerð viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Breytingar í framlagðri beiðni gera ráð fyrir aukningu útgjalda um 20 milljónir.
Helstu breytur eru fjölgun stöðugilda á málaflokki 01, vinna við nýja heimasíðu fyrir Skagafjörð vegna lokunar núverandi vefkerfis, flutningur aðstöðuhúss og undirbúningur tjaldsvæðis á Nöfum.
Niðurstaðan er lækkun á handbæru fé um 20.219 þ.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða beiðni um viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 181 Mál síðast á dagskrá 180. fundar byggðarráðs Skagafjarðar þann 5. febrúar 2026.
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs fór yfir stöðu málsins. Málið er í góðum farvegi og leitast er við að leysa málið á farsælan hátt fyrir alla aðila máls. Málið er unnið í góðu samstarfi lögfræðings sveitarfélagsins ásamt starfsfólki Landmark. Bókun fundar Afgreiðsla 181. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 181 Tekið fyrir erindi frá framkvæmdastjóra og flugrekstrarstjóra Atlantsflugs ehf, dag. 2. febrúar 2026, þar sem vakin er athygli á þingsályktunartillögu á Alþingi sem fjallar um að koma á fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri. Telja bréfritarar að raunhæfur valkostur við þá tillögu væri að koma upp 4 minni og sérhæfðari sjúkraþyrlum, staðsettum í mismunandi landshlutum. Slík lausn myndi m.a. færa bráðaþjónustu nær íbúum í fleiri sveitarfélögum, draga verulega úr viðbragðstíma í alvarlegum tilfellum, styðja við heilbrigðisstofnanir og bráðaþjónustu á svæðinu í heild, tryggja jafnræði í aðgengi að lífsbjargandi þjónustu óháð búsetu, stytta tíma þegar þörf er á sjúkraflugi milli landshluta, og skila meiri samfélagslegum ábata fyrir sama eða lægri heildarkostnað. Hvetja bréfritarar sveitarstjórnir til að nýta umsagnarfrestinn og koma fram með sjálfstæða umsögn þar sem tekið er mið af hagsmunum íbúa og mikilvægi þess að fjármunir ríkisins séu nýttir á sem skilvirkastan hátt. Bókun fundar Afgreiðsla 181. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 181 Mál áður á dagskrá 178. fundi byggðarráðs þann 21. janúar sl.
Tilboðsgjafi í Skógargötu hefur óskað eftir því að vera losaður undan kauptilboði sínu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að losa tilboðsgjafa undan kauptilboði sínu í eignina. Bókun fundar Afgreiðsla 181. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 181 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 22/2026, "Grænbók um byggðamál". Umsagnarfrestur er til og með 02.03. 2026.
Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir eftirfarandi umsögn.
Í 7. kafla Grænbókar um byggðarmál, Áherslur og leiðir, stendur: „Almenn sátt ríkir um gildandi byggðaáætlun, sem byggist ekki síst á virku samráði við mótun hennar og skilaði sér í breiðu eignarhaldi“.
Almennt sagt þá getur byggðarráð Skagafjarðar ekki tekið undir þessa fullyrðingu en upplifun byggðarráðs af gildandi byggðaáætlun er ekki sú að hún hafi nýst eða stuðlað að jöfnun búsetu eða jöfnun atvinnutækifæra í landinu. Síðustu ár hefur byggð á Norðurlandi vestra þróast með mun neikvæðari hætti en byggð í öðrum landshlutum og aðgerðir úr gildandi byggðaáætlun hafa þar engu breytt.
Hér koma svör við þeim spurningum sem settar eru fram í kafla 8.
1. Hver er skoðun þín á stöðumatinu.
Greining á stöðunni og samanburður landshlutanna er á margan hátt ágætur um það sem snýr að lífskjörum fólks og stöðu þess í samanburði landshlutanna. Ýmsu má samt velta fyrir sér eins og hver tilgangurinn sé að draga mörk þjónustusvæða við 30 km í skólasókn eða dagvöruverslun. Hér hafa margir aðrir þættir einnig áhrif eins og lega landssvæða, sameining sveitarfélaga yfir stór landfræðileg svæði, félagslegar og menningarlegar aðstæður, þéttleiki byggða og fleira.
Í greiningunni er hins vegar ekkert sett fram um stöðu atvinnulífs á viðkomandi svæðum né heldur þróun þess síðustu ár. Hér þarf að gera miklu betur og setja fram greiningu á skiptingu atvinnulífs milli atvinnuflokka, greina veltu og umfang atvinnugreinanna og sjá þannig með skýrari hætti hvað er að stuðla að hagvexti í viðkomandi landshluta og hvað veldur því í atvinnulífinu að ekki er ásættanlegur hagvöxtur eða fólksfjölgun á viðkomandi svæði. Það er ekki hægt að setja upp byggðaáætlun nema fyrir liggi góð greining á atvinnulífinu.
2. Hver er skoðun þín á þeirri framtíðarsýn og lykilviðfangsefnum sem sett er fram?
Framtíðarsýnin í áætluninni er:
„Framtíðarsýnin er að Ísland verði í fremstu röð með trausta og örugga innviði, öflug sveitarfélög, verðmætasköpun og framsækna þjónustu. Tenging byggða og Íslands við umheiminn verði í jafnvægi við umhverfið. Meginmarkmiðið er að innviðir mæti þörfum samfélagsins og byggðir og sveitarfélög um land allt verði sjálfbær.
Í öllum landshlutum verði blómlegar byggðir og öflugir byggðakjarnar þar sem stuðlað verði að bættum lífskjörum landsmanna og búsetufrelsi með sem jöfnustu aðgengi að grunnþjónustu og fjölbreyttum atvinnutækifærum. Grunnþjónusta verði veitt íbúum sem mest í nærsamfélaginu.“
Um þennan texta teljum við að flestir geti verið sammála, enda er framtíðarsýnin metnaðarfull. Sama má í raun einnig segja um þau fimm lykil viðfangsefni sem sett eru fram, þau hljóma flest öll mjög vel og eru í það minnsta fögur orð á blaði.
3. Hver er skoðun þín á þeim áherslum og leiðum sem lagðar eru til?
Séu áherslumarkmiðin skoðuð má sjá að þar fer engan veginn saman raunveruleikinn sem við búum við í dag og það sem í gangi er af hálfu hins opinbera. Hér er einungis tekið eitt dæmi í hverjum lið en auðvelt væri að hafa skoðun á öllum liðunum.
Dæmi úr A. „Jafna aðgengi að þjónustu“, en þar stendur um almennar áherslur „6. Samgönguinnviðir sem styðja daglegt líf og þjónustusókn“.
Þetta er mjög gott markmið, en raunveruleikinn er sá að á árinu 2025 voru almenningssamgöngur á Norðurlandi vestra skornar niður um meira en helming með fækkun á ferðum strætó milli Reykjavíkur og Akureyrar og ekkert kom í staðinn þrátt fyrir ítrekaðar óskir sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra um almenningssamgöngur á milli þéttbýlisstaðanna. Í drögum að núverandi samgönguáætlun er heldur ekkert sem gefur til kynna að auknu fé verði bætt við almenningssamgöngur í hvorki auknum strætó ferðum innan eða milli landshluta né heldur til viðhalds á t.d. Alexandersflugvelli við Sauðárkrók.
Dæmi úr B. „Jafna tækifæri til atvinnu“, en þar stendur um almennar áherslur „4. Óstaðbundin störf og staðsetning opinberra starfa“
Staðreyndin er sú að lang flestir ríkisstarfsmenn eru á höfuðborgarsvæðinu eða 70,2% árið 2024 á meðan fæstir þeirra eru starfandi á Norðurlandi vestra eða 1,9%. Höfuðborgarsvæðið er eina svæðið þar sem hlutfall stöðugilda ríkisins er hærra en hlutfall landsmanna sem þar býr. Í öðrum landshlutum er hlutfallið svipað. Sé horft á þróunina í skiptingu stöðugilda ríkisins er ljóst að hún er mjög mismunandi milli landshluta en minnst er hlutfallið á Norðurlandi vestra en þar fjölgaði ríkisstarfsmönnum um 10% frá 2018 til 2024 en einungis um rúm 4% frá 2020 til 2024 - á meðan allir aðrir landshlutar liggja á bilinu 11-42% fjölgunar ríkisstarfa frá 2020-2024.
Frá árinu 2018 til 2024 fjölgaði ríkisstörfum um rúmlega 4.000 eða tæp 18%. Þar af komu á Norðurland vestra 49 stöðugildi. Sé horft á þróunina frá árinu 2020 þá fjölgaði ríkisstörfum á milli áranna 2020 til 2024 um rúmlega 3.500 eða 12% og af þeirri fjölgun eru 23 stöðugildi á Norðurlandi vestra eða 0,7%
Það er ekki ásættanlegt fyrir landshluta þar sem íbúaþróun er undir landsmeðaltali og þróun í fjölda íbúa hægari en að meðaltali í landinu, að horfa á fjölda ríkisstarfa út frá íbúafjölda. Þessi svæði og þar með Norðurland vestra þurfa á innspýtingu að halda og því eðlilegt að á slíkum svæðum væri fjölgun ríkisstarfa mun hærri en í öðrum landshlutum þar sem íbúafjölgun er hraðari.
Fjölgun og þróun í ríkisstörfum hefur verið rakin hér að ofan og er ljóst að dreifing þeirra er mjög ójöfn og að sá ójöfnuður hefur vaxið mikið síðustu ár, sérstaklega eftir 2020. Hér verður að snúa þróuninni við og tryggja að fjölgun þessara starfa sé hlutfallslega mest á veikari svæðum.
Dæmi úr C „Stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land“, en þar stendur um almennar áherslur „2. Samspil dreifbýlis og þéttbýlis í byggðaþróun“.
Þetta er mjög stór og mikilvægur þáttur í jöfnun búsetu og lífskjara í landinu. Með sameiningu sveitarfélaga hefur krafan um jafnt aðgengi að þjónustu innan sveitarfélaga aukist, ásamt því að kostnaður við hana sé sambærilegur á milli íbúa. Hér ná nefna rafmagns- og hitunarkostnað. Ríkið er þar með hærri gjöld á flutningi rafmagns ásamt hærri tengigjöldum í dreifbýli en þéttbýli. Það er ósanngjarnt og er ekki til þess fallið að jafna lífskjör innan landmikilla sveitarfélaga og uppfyllir þar með ekki núverandi byggðaáætlun né heldur markmið þeirrar sem er í smíðum. Eins má nefna kostnað við húshitun með heitu vatni en oftast er mun kostnaðarsamara er að leggja heita vatnið um dreifbýli en þéttbýli. Hér þarf ríkið að koma inn í og jafna þennan mun til að jafna lífskjörin. Margt fleira mætti nefna eins og þjónustu við losun á sorpi en í dreifbýli er hún mun dýrari en í þéttbýli og fyrir landfræðilega stór sveitarfélög þá veður ríkið að stíga inn og jafna þennan kostnað eigi lífskjörin að vera jöfn.
4. Hver er skoðun þín á því hvernig best sé að meta árangur byggðastefnu?
Besta leiðin er að skoða og uppfæra sem oftast allar tölur sem snúa að íbúafjölda, lífskjörum, hagvexti, menntun, atvinnuþróun og mörgu fleiru reglulega. Verkfæri eins og mælaborð Byggðastofnunnar er jákvætt skref í þessari umræðu. Þetta þarf hins vegar að efla enn frekar, en um leið þarf að forðast að tveir aðilar séu að setja fram gögn um sömu hluti. Aðilar eins og Byggðastofnun, Hagstofan og Þjóðskrá eiga að vinna meira saman og vera með eina sameiginlega upplýsingaveitu sem gæti þá verið megin grunnur gagna sem lýsa þróun mismunandi svæða.
5. Annað sem þú vilt taka fram?
Tvennt má nefna sem raunhæfar leiðir til að bæta og jafna lífskjör með þeim verkfærum sem við höfum í dag og erum að vinna með alla daga, og ekki er talað um í fyrirliggjandi drögum.
Í fyrsta lagi má nefna hlutdeildarlánin en þau hafa ekki sem slík nýst til uppbyggingar á landsbyggðinni nema í mjög litlum mæli. Hugmyndafræðin á bakvið þau til fólks sem er að kaupa sína fyrstu íbúð er góð. Engu að síður er reynslan í Skagafirði og landshlutanum öllum sú að mjög fáir hafa haft möguleika á að nýta sér þetta úrræði til húsnæðiskaupa. Ástæðan er að stærstum hluta sú að verktakar eða fjárfestar í Skagafirði hafa ekki sóst eftir að byggja íbúðir sem standast kröfur um lágmarksstærð og hámarksverð til að fá hlutdeildarlán. Þessu væri auðvelt að breyta með sértækum hlutdeildarlánum til svæða eins og Norðurlands vestra þar sem íbúaþróun er undir landsmeðaltali og íbúða og byggingarmarkaður íbúða jafn óvirkur og raun ber vitni. Þannig mætti örva íbúabyggingu og fólksfjölgun.
Í öðru lagi má nefna skattkerfið en með því að greina reglulega stöðu landshlutanna og svæða innan þeirra mætti taka heilu landshlutana eða afmörkuð svæði og beita þar skattkerfinu sem hvata fyrir fólk til að koma þangað með atvinnustarfsemi eða fjárfesta sér í húsnæði. Úrræðin gætu verið tímabundin til t.d. 10 ára en þau þurfa samt að vera það hvetjandi að fólk sái hag í að nýta þau. Gott dæmi um land sem hefur notað skattkerfið með ýmsum hætti til að efla og styrkja búsetu er Noregur og af þeim mætti læra margt um nýtingu skattkerfisins til að jafna búsetu og lífskjör í landinu.
Bókun fundar Afgreiðsla 181. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 181 Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 31/2026, "Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs". Umsagnarfrestur er til og með 20.02. 2026.
Byggðarráð Skagafjarðar mótmælir þeim áformum sem fram koma í drögum að frumvarpi. Með frumvarpinu er lagt til að núverandi heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður og að rúmlega 70% af starfsemi þeirra, sem jafnframt eru tekjuberandi verkefnin, flytjist frá sveitarstjórnarstigi til ríkisins. Þessi breyting kollvarpar rekstrargrundvelli heilbrigðiseftirlitanna og skilur sveitarfélög eftir með verkefni sem eru þjónustuháð, tekjulítil og í mörgum tilvikum ófjármögnuð.
Ljóst er að breytingarnar munu hafa verulega neikvæð áhrif á landsbyggðina. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa áratuga reynslu af stöðugri og staðbundinni þjónustu sem byggir á þekkingu á aðstæðum, svæðum, áhættumatsháttum og atvinnulífi. Sú sérþekking sem er undirstaða hraðra viðbragða, tapast ef verkefnin eru færð í miðlægt kerfi ríkisstofnana. Þrátt fyrir fullyrðingar um að störfum verði fjölgað á landsbyggðinni er ekkert í frumvarpinu sem tryggir slíkt. Þvert á móti er hætt við að störf flytjist frá svæðinu og að sérfræðingar, sem búa í nærumhverfi sveitarfélaga, missi starf eða velji að starfa í stærri þéttbýliskjörnum þar sem stofnanirnar eru með meginstarfsemi sína.
Byggðarráð telur sérlega mikilvægt að á það sé bent að ekkert í athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) kallar á niðurlagningu staðbundinna stjórnvalda eða heilbrigðiseftirlita. Ábendingar ESA snúa fyrst og fremst að samræmingu, skýrari ábyrgð og sameiginlegum upplýsingakerfum, en öll þau markmið má uppfylla án þess að leggja niður heilbrigðiseftirlitin. Frumvarpið gengur því töluvert lengra en nauðsynlegt er og er hvorki útskýrt né rökstutt með fullnægjandi hætti hvers vegna meðalhófs sé ekki gætt og vægari og hagkvæmari úrræði, svo sem styrkt samræmingarhlutverk ríkisstofnana, innleiðing sameiginlegs upplýsingakerfis og skýrari verkaskipting séu ekki valin.
Eitt af áhyggjuefnum byggðarráðs er hætta á þjónusturofi við yfirfærslu verkefnanna. Frumvarpið gerir ráð fyrir að allar breytingar taki gildi 1. janúar 2027 og felur í sér að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lögð niður á sama tíma og ríkið tekur við öllum verkefnum á tveimur stofnunum. Slík framkvæmd er áhættusöm. Fyrir liggur að fjöldi starfsmanna þarf að skipta um starfsvettvang, verklag og ábyrgð breytast, upplýsingakerfi þurfa að vera tilbúin og byrjað verður að vinna eftir verkferlum sem hafa ekki verið prófaðir í framkvæmd. Reynslan sýnir að jafn umfangsmiklar verkefnayfirfærslur taka að lágmarki nokkur ár í undirbúningi til að tryggja samfellda og trausta þjónustu. Hér er hins vegar gert ráð fyrir mjög skömmum aðlögunartíma og engum skýrum áætlunum um hvernig forðast eigi rof í eftirliti, leyfisveitingum eða bráðu viðbragði. Slíkt þjónusturof myndi bitna sérstaklega á rekstraraðilum sem þurfa leyfi eða endurnýjun leyf, ferðaþjónustufyrirtækjum, matvælafyrirtækjum og smærri verslunum sem reiða sig á reglubundnar úttektir. Að auki bitnar þetta á sveitarfélögum sem missa aðgengi að skjótum ráðleggingum eða viðbrögðum vegna mengunaróhappa, atvika eða kvartanamála auk þess sem íbúar og atvinnulíf missir aðgang að skjótum og staðbundnum viðbrögðum fagfólks sem þekkir aðstæður.
Á sama tíma er leiða má líkur að því að flóknar boðleiðir innan ríkiskerfisins, takmarkaður aðgangur að starfsmönnum í nærsamfélaginu og aukið álag á fáum starfsmönnum muni skapa tafir, óvissu og síendurtekið tvíverknað næstu árin á eftir.
Fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög eru einnig umfangsmikil, þótt frumvarpið geri lítið úr þeim. Sveitarfélög munu þurfa að standa undir biðlaunakostnaði, breytingakostnaði, kostnaði við ráðningar sérfræðinga í ný verkefni og yfirfærslu staðbundinna úrlausnarefna sem fylgja engar tekjur með. Það að tekjustofnar heilbrigðiseftirlita sem eru í þessum tilvikum stærstu verkefnin séu teknir af sveitarfélögum án þess að bæta sveitarfélögum tekjumissinn, hlýtur að teljast skýr tilfærsla fjárhagslegs álags frá ríki til sveitarfélaga.
Byggðarráð ítrekar að einfaldari, skilvirkari og ódýrari leið er fyrir hendi, það er að styrkja samræmingu, verklag og upplýsingakerfi innan núverandi kerfis, án þess að leggja heilbrigðiseftirlitin niður. Sú leið myndi tryggja betri gæði, meiri samfellu og jafnt aðgengi að þjónustu um allt land.
Með vísan til alls framangreinds tekur Byggðarráð Skagafjarðar undir umsögn og sjónarmið heilbrigðiseftirlita á landinu að öllu leyti, telur frumvarpið ómótað, lítt rökstutt og líklegt til að rýra þjónustu við íbúa og atvinnulíf um land allt, og skorar á ráðherra að draga áformin til baka og hefja í staðinn frekara samráð við sveitarfélög og heilbrigðiseftirlitin um úrbætur sem byggja á raunhæfum, hagkvæmum og sanngjörnum lausnum.
Bókun fundar Afgreiðsla 181. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 181 Á Alþingi er til umfjöllunar stjórnarfrumvarp frá atvinnuvegaráðherra um breytingu á búvörulögum nr. 99/1993, 374. mál.
Byggðarráð Skagafjarðar telur að nái frumvarpið fram að ganga í óbreyttri mynd hafi það verulega neikvæð áhrif á starfsumhverfi íslensks landbúnaðar. Með breytingu 71. greinar búvörulaga er ljóst að verið er að rjúfa áratuga langa þróun hagræðingar í íslenskum mjólkuriðnaði sem skilað hefur lægri framleiðslukostnaði, bændum hærra afurðaverði en ella og neytendum hágæða framleiðsluvörur á hagkvæmara innkaupaverði en annars væri raunin. Með takmörkunum á samstarfi og sameiningu afurðastöðva í kjöt- og mjólkuriðnaði er þannig verið að vinna gegn hagræðingu í íslenskum landbúnaði, sporna gegn framþróun í greininni, veikja samkeppnisstöðu greinarinnar og draga úr tækifærum til aukinnar nýsköpunar. Með því er enn vegið að afkomuöryggi bænda og um leið unnið gegn áherslum á eflingu byggða um land allt og styrkingu fæðuöryggis þjóðarinnar.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur jafnframt undir með Bændasamtökum Íslands um að frumvarpsdrögin gangi gegn þeirri þróun sem átt hefur sér stað undanfarna áratugi í mjólkuriðnaði, þar sem sameining og hagræðing hafa skilað miklum ávinningi, allt að 5 milljörðum króna árlega, bændum og neytendum til hagsbóta. Að sama skapi er áætlað að hagræðing í kjötiðnaði muni skila um 2 milljörðum króna á ári. Með breytingunum er því gengið þvert gegn yfirlýstri stefnu ríkisstjórnar Íslands um að efla verðmætasköpun í íslenskri matvælaframleiðslu og tryggja sjálfbæra innlenda framleiðslu. Bókun fundar Afgreiðsla 181. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.