Fara í efni

Ósk um upplýsingar

Málsnúmer 2601284

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 179. fundur - 30.01.2026

Lögð fram fyrirspurn frá fulltrúa VG og óháðra, dags. 23. janúar 2025:

Sem kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Skagafjarðar óska ég eftir nánari upplýsingum um stöðu þess máls sem samþykkt var samhljóða á sveitarstjórnarfundi í febrúar 2025, þar sem meirihluti sveitarstjórnar lagði til að aflað yrði álits siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga á því hvort þáverandi formaður fræðslunefndar hefði brotið gegn siðareglum kjörinna fulltrúa í Skagafirði og hæfisreglum stjórnsýslulaga.

Undirrituð hefur nú fengið það svar frá lögfræðingi Sambands íslenskra sveitarfélaga að umrædd siðanefnd hafi þegar skilað áliti sínu vegna málsins til Sveitarfélagsins Skagafjarðar og því sé rétt sé að beina fyrirspurn um stöðu málsins til sveitarstjóra.

Með vísan til þess er hér með óskað eftir upplýsingum um eftirfarandi á byggðaráðsfundi:

Hvenær álit siðanefndar barst sveitarfélaginu?
Hvernig og hvar málið hefur verið tekið til umfjöllunar innan stjórnsýslu sveitarfélagsins?
Hvort og hvenær fyrirhugað er að kynna sveitarstjórn niðurstöðu siðanefndar og með hvaða hætti niðurstaðan verður gerð opinber?


Svör sveitarstjóra eru eftirfarandi:

Á 35. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar 12. febrúar 2025 var samhljóða samþykkt tillaga meirihluta sveitarstjórnar um að aflað yrði álits siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga á því hvort þáverandi formaður fræðslunefndar hafi brotið gegn siðareglum kjörinna fulltrúa í Skagafirði og hæfisreglum stjórnsýslulaga.
Álit siðanefndar Sambandsins barst sveitarfélaginu 16. september 2025. Sveitarstjóri sendi stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga athugasemdir við álitið 19. september 2025 og óskaði trúnaðar á því, enda slíkt eðlilegt á meðan athugasemdirnar væru teknar til efnislegrar meðferðar. Snéru þær athugasemdir að því að siðanefnd væri ekki að gefa álit sitt á störfum viðkomandi fulltrúa fyrir sveitarfélagið, svo sem siðareglur ná til, heldur hafi metið framgöngu hans utan starfa hans fyrir sveitarfélagið út frá öðrum mælikvörðum og gildum. Slíkt getur skapað fordæmi gagnvart störfum nefndamanna sveitarfélagsins utan sinna nefnda, sem og nefndamanna í sveitarstjórnum um land allt - á sama tíma og Samband íslenskra sveitarfélaga hefur unnið að því á núverandi kjörtímabili að bæta starfsumhverfi kjörinna fulltrúa. Upplýsti sveitarstjóri í kjölfarið oddvita framboðanna í Skagafirði, utan dagskrár á fundi byggðarráðs, um álitið og að hann hefði sent athugasemdir við það inn til stjórnar Sambandsins.
Við eftirgrennslan um stöðu málsins mánudaginn 19. janúar sl. fékk sveitarstjóri upplýsingar um lyktir málsins sem væru þær að niðurstaða siðanefndar Sambandsins frá 16. september væri endanleg. Óskaði sveitarstjóri í kjölfarið eftir að fá senda bókun stjórnar Sambandsins við meðferð málsins og fékk hana senda miðvikudaginn 21. janúar sl. Í henni kemur fram að á vettvangi Sambandsins sé starfsumhverfi kjörinna fulltrúa til umfjöllunar hverju sinni og því vilji stjórn vekja athygli á að almenn réttindi kjörinna fulltrúa séu höfð til hliðsjónar við vinnslu erinda þeim tengdum eins og kostur er.
Ljóst var þá að endanleg niðurstaða lægi fyrir og unnt væri að leggja þær niðurstöður fram á næsta byggðarráðsfundi Skagafjarðar, svo sem gert var. Óskaði sveitarstjóri einnig eftir að fá það erindi sem fór frá stjórn Sambandsins til Siðanefndar Sambandsins í kjölfar athugasemda sveitarstjóra Skagafjarðar varðandi mál kjörins fulltrúa, umbeðið lögfræðibréf sem sent var í kjölfarið, sem og svar siðanefndar til stjórnar Sambandsins. Þau gögn liggja nú fyrir og voru kynnt fyrr á dagskrá þessa fundar.