Lagt fram bréf frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélagi Íslands, dagsett 27. janúar 2026, sem sent var til aðildarsveitarfélaga EBÍ. Í bréfinu er vakin athygli á því að sveitarfélögum stendur til boða að sækja um framlög úr sjóðnum. Styrktarsjóður EBÍ var stofnaður árið 1996 og er tilgangur sjóðsins að styrkja með fjárframlögum sérstakar athuganir eða rannsóknir á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgöngum, fræðslu- og menningarmálum í aðildarsveitarfélögum EBÍ. Ekki er hægt að sækja um styrk vegna almennra rekstrarverkefna sveitarfélaga. Sveitarfélag getur að öllu jöfnu ekki fengið úthlutað styrk 2 ár í röð. Frestur til að sækja um styrk úr sjóðnum er til loka febrúar n.k.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.