Fara í efni

Eyrarvegur 20 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi.

Málsnúmer 2601256

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 78. fundur - 29.01.2026

Hallgrímur Ingi Jónsson tæknifræðingur leggur fram f.h. Kaupfélags Skagfirðinga gögn er varðar tilkynnta framkvæmd fyrir Eyrarveg 20 á Sauðárkróki. Tilkynnt framkvæmd varðar breytingar á útliti vesturhliðar húss. Framlögð gögn gerð á Stoð ehf. verkfræðistofu af Hallgrími Inga Jónssyni. Uppdráttur í verki 30270305, númer A-101, dagsettur 23.01.2026. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.