Fara í efni

Kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026

Málsnúmer 2601046

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 177. fundur - 14.01.2026

Byggðarráð samþykkir samhljóða að kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026 verði eftirfarandi: Bóknámshús FNV á Sauðárkróki, Varmahlíðarskóli og Félagsheimilið Höfðaborg á Hofsósi.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 45. fundur - 21.01.2026

Vísað frá 177. fundi byggðarráðs frá 14. janúar sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Byggðarráð samþykkir samhljóða að kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026 verði eftirfarandi: Bóknámshús FNV á Sauðárkróki, Varmahlíðarskóli og Félagsheimilið Höfðaborg á Hofsósi."

Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri, kvaddi sér hljóðs og lagði til að færa kjörstaðinn á Hofsósi verði í Grunnaskólanum austan vatna í ljósi þess að framkvæmdir síðustu ára hafa stórbætt aðgengismál í húsakynnunum, auk þess sem Höfðaborg er ekki laus til uppsetningar kjörstaðar á kjördag.

Kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026 verða þá eftirfarandi: Bóknámshús FNV á Sauðárkróki, Varmahlíðarskóli og Grunnskólinn austan Vatna á Hofsósi.

Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með sjö atkvæðum. Álfhildur Leifsdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, fulltrúar VG og óháðra, sitja hjá við afgreiðslu málsins.