Borgarflöt 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2512167
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 78. fundur - 29.01.2026
Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. K-Tak ehf. um leyfi til að byggja við iðnaðarhúsnæði sem stendur á lóðinni númer 3 við Borgarflöt á Sauðárkróki. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir eru í verki HA25157, númer A-101, A-102, A-103, A-104 og A-105, dagsettir 16.12.2025. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.