Niðurfelling gatnagerðargjalda
Málsnúmer 2512133
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 175. fundur - 17.12.2025
Byggðarráð samþykkir samhljóða að beina því til sveitarstjórnar að samþykkja að um íbúðalóðir sem úthlutað er frá og með 1. janúar 2026 gildi tímabundin niðurfelling gatnagerðargjalda af byggingu íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á eftir greindum lóðum við þegar tilbúnar götur á bæði Hofsósi og Steinsstöðum. Verði það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Niðurfellingin gildir um eftirtaldar lóðir á Hofsósi: Kirkjugata nr. 11, Sætún nr. 1-5 (raðhús) og 12, og Hátún nr. 1, 2, 3, 4, og 5. Niðurfellingin gildir jafnframt um eftirtaldar lóðir á Steinsstöðum: Lækjarbakka nr. 1, 2 og 4. Framangreindar lóðir á Hofsósi og að Steinsstöðum bera, verði ekki annað ákveðið, full gatnagerðargjöld eftir 31. desember 2026, sé þeim úthlutað eftir það tímamark.