Narfastaðir land L215816 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2509237
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 72. fundur - 09.10.2025
Emil Þór Guðmundsson byggingartæknifræðingur sækir f.h. Bergs Gunnarssonar og Rósu Maríu Vésteinsdóttur um leyfi til að byggja frístundahús á lóðinni Narfastaðir land, L215816. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir númer BN01, BN02 og BN03, dagsettir 23.09.2025. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.