Fara í efni

Barnvæn samfélög - boð um þátttöku í verkefni

Málsnúmer 2508226

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 162. fundur - 17.09.2025

Lagt fram erindi frá UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, dagsett 14. ágúst 2025, þar sem vakin er athygli á að UNICEF á Íslandi hefur opnað fyrir umsóknir um þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög og er Skagafirði boðið að sækja um. Jafnframt er boðið upp á að haldin verði kynning á verkefninu fyrir áhugasöm sveitarfélög.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að þiggja boð UNICEF um kynningu á verkefninu.

Byggðarráð Skagafjarðar - 163. fundur - 24.09.2025

Marín Rós Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Unicef sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og kynnti fyrir byggðarráði hvað felst í verkefninu um barnvæn samfélög á vegum Unicef.

Byggðarráð þakkar fyrir góða kynningu.