Fara í efni

Útsvarshlutfall 2026

Málsnúmer 2508141

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 159. fundur - 27.08.2025

Á árinu 2025 er útsvarshlutfall 14,97% eftir samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga frá 15.12.2023 um tekjustofna vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Tekin umræða um útsvarshlutfall ársins 2026.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að halda útsvarshlutfalli óbreyttu í 14,97% árið 2026.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 41. fundur - 17.09.2025

Vísað frá 159. fundi byggðarráðs frá 27. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
„Á árinu 2025 er útsvarshlutfall 14,97% eftir samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga frá 15.12.2023 um tekjustofna vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Tekin umræða um útsvarshlutfall ársins 2026.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að halda útsvarshlutfalli óbreyttu í 14,97% árið 2026.“

Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að halda útsvarshlutfalli óbreyttu í 14,97% árið 2026.