Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26
Málsnúmer 2505012F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 39. fundur - 23.06.2025
Fundargerð 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 15. maí 2025 lögð fram til afgreiðslu á 39. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, Einar E. Einarsson og Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir kvöddu sér hljóðs.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26 Málinu frestað Bókun fundar Afgreiðsla 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26 Auglýst var meðal veiðimanna eftir aðila til að sjá um minka- og refaveiðar í Hegranesi. Jón Sigurjónsson, Garðar Páll Jónsson og Elvar Örn Birgisson sóttu um refaveiðina og Elvar Örn Birgisson einn um minkaveiðina. Á fundinum var dregið á milli þeirra þriggja sem sóttu um refaveiðina og kom nafn Elvars upp úr pottinum
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að Elvar Örn Birgisson annist minka- og refaveiði í Hegranesi.
Bókun frá fulltrúa Vg og óháðra í Landbúnaðar- og innviðanefnd Skagafjarðar:
Fulltrúi Vg og óháðra leggur áherslu á að farið sé að þeim ákvæðum sem kveðið er á um í sameiningarsamningi við fyrrum Rípurhrepp, þar sem meðal annars kemur skýrt fram að við veiðistjórn og ráðningu veiðimanna á svæði Hegraness skuli leitast við að ráða einstaklinga með sterk tengsl við svæðið, þ.e. íbúa af Hegranessvæðinu eða nærliggjandi byggðum.
Ljóst er að ef byggja á ráðningarferlið á hlutkesti á milli umsækjenda sem ekki allir eru búsettir á eða við svæðið, skapast hætta á að veiðieftirliti verði ekki sinnt með fullnægjandi hætti, auk þess sem með slíku verklagi væri verið að ganga gegn ákvæðum og anda sameiningarsamningsins. Þrátt fyrir að nokkur tími sé liðinn frá sameiningunni, hefur aldrei verið dregið í efa að virða beri þau meginmarkmið sem íbúar svæðisins samþykktu í gegnum samninginn ? þar á meðal að staðbundnir aðilar sæi um veiðar á sínu heimasvæði.
Fulltrúi Vinstri grænna og óháðra Hildur Magnúsdóttir situr því hjá við afgreiðslu málsins á þessum forsendum.
Einar Einarsson fulltrúi Framsóknar, Sólborg Borgarsdóttir fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Sveinn Finster Úlfarsson áheyrnarfulltrúi Byggðalista óska bókað:
Við val á umsjónarmönnum fyrir refa- og minkaveiði ákveðinna svæða í Skagafirði verður að ríkja jafnræði milli þeirra íbúa í Skagafirði sem uppfylla kröfur sem sveitarfélagið gerir til veiðimanna. Upprunni einstaklinga eða aðrar tengingar þeirra við umrædd svæði geta ekki haft áhrif þar á og því eðlilegt að dregið sé á milli manna, sækji fleiri en einn um hverju sinni. Gamla samkomulagið sem undirritað var 1998 af öllum hlutaðeigandi skuldbindur sveitarfélagið ekki af öðru en að sinna lögbundnum skyldum og að jafnræði gildi í þjónustu og meðferð mála.
Bókun fundar Afgreiðsla 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með sjö atkvæðum. Fulltrúar VG og óháðra óska bókað að þær sitja hjá við afgreiðslu málsins. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26 Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að viðhald afréttargirðingar Staðarfalla skuli falla undir stjórn fjallskiladeildar Staðarfjalla eins og er um aðrar afréttargirðingar. Gert verður ráð fyrir þessum kostnaði í úthlutun til deildarinnar. Umhverfis og landbúnaðarfulltrúa er falið að hafa samband við deildina vegna þessa. Bókun fundar Afgreiðsla 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26 Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að auglýsa hólf 27 í austari flóa við Hofsós til leigu. Gert er ráð fyrir fimm ára leigutíma og til greina kemur ef fleiri en einn sækja um að hægt verði að skipta hólfinu upp. Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa er falið að auglýsa hólfið. Bókun fundar Afgreiðsla 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26 Fjárhagsáætlanir fjallskiladeilda í Skagafirði fyrir árið 2025 lagðar fram ásamt drögum að úthlutun sveitarsjóðs. Afgreiðslu frestað. Bókun fundar Afgreiðsla 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26 Leigusamningur Fjallskilasjóðs Lýtingsstaðahrepps frá árinu 1989 vegna Írafells við íslenska ríkið lagður fram. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að leita álits fjallskiladeildar framhluta Skagafjarðar á þörfum þess að halda áfram leigu landsins eða hvort segja skuli upp samningnum. Bókun fundar Afgreiðsla 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26 Ársreikningur Fjallskilasjóðs Rípurhrepps vegna ársins 2024 lagður fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26 Ársreikningur Fjallskilasjóðs Seyluhrepps úthluta vegna ársins 2024 lagður fram til kynningar Bókun fundar Afgreiðsla 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 26 Fundagerðir Hafnasamband Íslands 2025 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 26. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með níu atkvæðum.