Hvammur L229358 - Umsókn um skráningu fasteignar
Málsnúmer 2501134
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 55. fundur - 17.01.2025
Stefán Björnsson leggur fram gögn varðandi lokun á verönd einbýlishúss sem stendur á lóðinni Hvammi, L229358 í Skagafirði. Framlagður uppdráttur gerður af Vali Benidiktssyni byggingarfræðingi. Uppdráttur í verki T24-101, númer 0100, dagsettur 18.12.2024. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingarleyfi veitt.