Sauðárkrókur - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2412084
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 58. fundur - 26.02.2025
Atli Gunnar Arnórsson byggingarverkfræðingur á Stoð ehf. verkfræðistofu sækir f.h. Hafnarsjóðs Skagafjarðar/Skeljungs ehf. um leyfi til að koma fyrir 10 m³ olíutanki við svokallað syðra plan við Sauðárkrókshöfn. Við tankinn verður komið fyrir búnaði til afgreiðslu gasolíu á minni skip og báta. Framlagður uppdráttur gerður af umsækjanda. Uppdráttur í verki 3600-0200, númer S-101, dagsettur 03.12.2024, breytt 25.02.25. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.