Fara í efni

Ármúli L145983 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2412003

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 55. fundur - 17.01.2025

Guðmundur Hreinsson byggingarfræðingur sækir f.h. Hermanns Þórissonar um leyfi til að byggja íbúðarhús á jörðinni Ármúla L145983. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Teikni- og tækniþjónustunni TOGT ehf. af umsækjanda. Uppdrættir númer A-001, A-002, A-003 og A-004, dagsettir 15.01.2025. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.