Bóla L146272 - Umsókn um leyfi til niðurrifs mannvirkja.
Málsnúmer 2404036
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 62. fundur - 05.05.2025
Arnar Logi Valdimarsson, Gunnar Ingi Valdimarsson, Kári Gunnarsson og Reynald Smári Gunnarsson þinglýstir eigendur jarðarinnar Bólu, L146272 í Blönduhlíð sækja um leyfi til að rífa íbúðarhús sem byggt er árið 1935, mhl. 04 á jörðinni og fjárhús sem byggð eru árið 1929, mhl. 06 á jörðinni, þ.e.a.s. þann hluta fjárhússa sem standa ofan hleðslu úr grjóti og torfi. Fjárhúsið sem um ræðir er sambyggt hlöðu byggðri 1980. Fyrir liggja umsagnir Minjastofnunnar Íslands dagsettar 3. apríl 2024 og 20. febrúar 2025. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingarfulltrúi samþykkir áform um niðurrif og bendir jafnframt á að farið skuli að tilmælum minjavarðar Norðurlands vestra.