Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 94
Málsnúmer 2111023F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 419. fundur - 15.12.2021
Fundargerð 94. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar frá 30. nóvember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 416. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 94 Tekið fyrir erindi frá Sigurpáli Aðalsteinssyni og Kristínu Magnúsdóttur f.h. Videosport ehf dagsett, 16.11.2021, um áframhaldandi rekstrarstuðning við rekstur Félagsheimilisins Ljósheima. Um er að ræða stuðning við greiðslu á orkukostnaði fyrir húsið.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að veita áframhaldandi rekstrarstuðning vegna orkukostnaðar til 1. maí 2022. Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 94 Tekin fyrir fjárhagsáætlun fyrir árið 2022 fyrir málaflokk 05.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar henni til byggðaráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 94 Tekin fyrir fjárhagsáætlun fyrir árið 2022 fyrir málaflokk 13.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar henni til byggðaráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 94 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 22. nóvember 2021 þar sem mennta- og menningarmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 219/2021, "Drög að reglugerð um minjasvæði og minjaráð". Umsagnarfrestur er til og með 06.12.2021. Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 94 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 22. nóvember 2021 þar sem mennta- og menningarmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 220/2021, "Reglugerð um Kvikmyndasjóð". Umsagnarfrestur er til og með 13.12.2021. Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 94 Lögð fram samantekt um starfsemi Flugklasans Air 66N frá Markaðsstofu Norðurlands fyrir tímabilið 9. apríl - 26. okt 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.