Hjólreiðasöfnun samstarf
Málsnúmer 2103334
Vakta málsnúmerFélags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 288. fundur - 08.04.2021
Lögð fram beiðni frá Hjólreiðafélaginu Drangey um samstarf við félagsþjónustuna um aðkomu að hjólasöfnun, hjólin verða gefin börnum og unglingum sem ekki hafa tök á að kaupa sér reiðhjól. Verkefnið er unnið í samstarfi við Barnaheill - Save the children á Íslandi. Óskað er eftir fjárstuðning til að koma verkefninu af stað og aðkomu félagsþjónustunnar við að úthluta hjólunum. Nefndin samþykkir samstarfið og felur félagsþjónustunni að framkvæma það.