Skipulags- og byggingarnefnd - 361
Málsnúmer 1910032F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 390. fundur - 13.11.2019
Fundargerð 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 28. október 2019 lögð fram til afgreiðslu á 390. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson, kynnti fundargerð. Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E Einarsson og Bjarni Jónsson, Jóhanna Ey Harðardódttir og Einar E Einarsson og Bjarni Jónsson kvöddu sér hljóðs.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Á fundinn kom Sigfús Ólafur Guðmundsson til viðræðna við nefndina um hvernig heppilegast sé að kynna íbúum vinnuferlið við endurskoðu aðalskipulags á veraldarvefnum. Samþykkt að fá unnin gögn til að meta vindauðlindina í Skagafirði og ganga að tilboði Veðurvaktarinnar varðandi málið. Rætt um skólaverkefnið og spurningar til nemanda í framhaldi af fundi með grunnskólanemendum.
Bókun fundar Afgreiðsla 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 með níu atkvæðum. -
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Ingvar Daði Jóhannsson kt 06098-5979 og Barbara Wenzl kt 250180-2179 þinglýstir eigendur jarðarinnar Engihlíð, landnúmer 146517, sækja um heimild Skipulags- og bggingarnefndar og sveitarstjórnar til að stofna byggingarreit á jörðinni. Um er að ræðar byggingarreit fyrir reiðskemmu, sem er viðbygging við útihús á jörðinni. Erindið samþykkt. Bókun fundar Afgreiðsla 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 með níu atkvæðum.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Sigurður Bjarni Rafnsson formaður Skíðadeildar U.M.F. Tindastóls óskar eftir, f.h. Skíðadeildar U.M.F.T, að skipulags- og byggingarnefnd og sveitarstjórn taki til umfjöllunar og auglýsingar breytingu á staðfestu deiliskipulagi Skíðasvæðisins í Tindastóli.
Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Tindastóli var staðfest 29.11.2017 og auglýst
í B deild Stjórnartíðinda 23.02.2018.
Meðfylgjandi tillaga að breyttu deiliskipulagi er unnin hjá VSÓ rágjöf, dagsett 27. september 2019 og ber heitið deiliskipulag Skíðasvæðis í Tindastóli.
Breytingin snýr að því að afmarkaður er byggingarreitur BR-8 suðvestan við bílaplan. Stærð byggingarreits er 1500 fermetrar og veitir heimild fyrir byggingum allt að 7 m hæð. Erindið samþykkt.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 39 "Skíðadeild UMF Tindastóls". Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Indriði Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sækir um heimild til að byggja við grunnskólann á Hofsósi, viðbyggingu sem fyrirhugað er að hýsi leikskóladeild. Meðfylgjandi uppdrættir gerðir af Jóni Þór Þorvaldssyni arkitekt hjá Úti og Inni arkitektum. Erindið samþykkt, byggingarfulltrúa falið að afgreiða erindið. Bókun fundar Afgreiðsla 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 með níu atkvæðum.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Lagt fyrir bréf eigenda Hótels Varmahlíðar varðandi framkvæmdir við sjálfsafgreiðslustöð OLIS á lóð Kaupfélags Skagfirðinga í Varmahlíð. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði grein fyrir málinu og fundi með hlutaðeigendum. Bókun fundar Ólfur Bjarni Haraldsson fulltrúi Byggðalista vék af fundi undir afgreiðslu málsins.
Jóhanna Ey Harðardóttir fulltrúi Byggðalista kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
Þar sem byggðaráð fer með eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins vil ég vísa þessu máli til byggðaráðs og það taki til skoðunar þá málsmeðferð sem framkvæmdir við sjálfsafgreiðslustöð Olís í Varmahlíð fékk.
Greinagerð;
Samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010 er landið allt skipulagsskylt og skulu framkvæmdir vera í samræmi við staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag. Breytingar á deiliskipulagi skal kynna með formlegum hætti, verulegar breytingar eru auglýstar skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga en óverulegar breytingar má grenndarkynna skv. 2. mgr. 43 gr.
Þær breytingar sem hafa staðið yfir á bílaplani og verslunarkjarna gamla KS nú Olís/Grill 66 eru að mínu mati ekki samkvæmt núverandi deiluskipulagi sem gert var árið 1997, því tel ég að samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010 hafi ekki verið staðið rétt að meðferð þessu tiltekna máli. Það hefði átt að auglýsa eða kynna þær breytingar sem nú standa yfir, því þær hafa haft veruleg áhrif á fólkið sem býr á svæðinu.
Jóhanna Ey Harðardóttir.
Einar E Einarsson kvaddi sér hljóðs, þá Bjarni Jónsson, Jóhanna Ey Harðardóttir.
Einar E Einarsson varamaður Framsóknarflokks, lagði fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar meirihlutans vilja ítreka að umrædd lóð er í eigu Menningarseturs Skagfirðinga og var úthlutað á fundi þeirra 27. febrúar 2018. Þar var þá einnig lagður fram skipulagsuppdráttur sem sýndi fyrirhugaðar framkvæmdir. Ekki voru gerðar athugasemdir við uppdráttinn og lóðarúthlutunin samþykkt. Þar sem Menningarsetrið er sjálfseignarstofnun hafa umræddar framkvæmdir ekki komið fyrir fráfarandi eða núverandi skipulagsnefndir sveitarfélagsins enda gekk þáverandi formaður Menningarsetursins frá samningi við skipulags- og byggingarfulltrúa um að taka málið til skipulagslegrar meðferðar samkvæmt samþykkt stjórnar.
Bjarni Jónsson fulltrúi Vg og óháðra leggur fram bókun: Flest sem hefur komið fram á fundinum styður þá málsmeðferð að byggðarráð fjalli um málið.
Tillaga Jóhönnu Ey borin upp til afgreiðslu og samþykkt með átta atkvæðum, Ólafur Bjarni Harðarsson fulltrúi Byggðarlista og óskar bókað að hann taki ekki þátt í atkvæðagreiðslu.
Afgreiðsla 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 með átta atkvæðum, Ólafur Bjarni Harðarsson fulltrúi Byggðalista óskar bókað að hann taki ekki þátt í atkvæðagreiðslu. -
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Fyrir liggur greinargerð Arnórs Halldórssonar lögmanns vegna erindis Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Greinargerðin hefur verið send til úrskurðarnefndarinnar. Ákvörðun Skipulags- og byggingarnefndar frá 348. fundi þann 24. maí sl. er varðar byggingarlóðina Ásholt í Skagafirði var kærð til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Bókun fundar Afgreiðsla 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 með níu atkvæðum.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Lagt fram bréf dagsett 20. september 2019 frá Tré lífsins. Bréfið er sent til að kanna áhuga sveitarfélagsins til minnigargarða og afstöðu til þess að opna slíkan garð í sveitarfélaginu. Í minningargarð er gert ráð fyrir að aska látinna einstaklinga verði jarðsett ásamt því að tré verður gróðursett til minningar um hinn látna.
Með vísan til laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, 36/1993, hafnar Skipulags- og bygginganefnd erindinu. Skipulags- og byggingarnefnd bendir á, með tilvísun í ofangreind lög, að skylt er að greftra lík í lögmætum kirkjugarði, eða brenna þau í viðurkenndri líkbrennslustofnun (bálstofu).
Bókun fundar Afgreiðsla 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 með níu atkvæðum. -
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Málið varðar afleggjara/vegtengingu sem er á skipurlagi Sveitarfélagsins í Varmahlíð inn á þjóðveg 1 suður af Birkimelnum.
Eigendur Víðimels stefna á að opna fjölskyldugarð í landi Víðimels og telja að aðkoma að garðinum þurfi að vera vestanfrá af þjóðvegi nr 1.
Fyrir liggur að Vegagerðin hefur hafnað slíkri tengingu að landinu og bendir á að nýta fyrirhugaða vegtengingu frá þjóðvegi 1 sem sýnd er á staðfestu aðalskipulagi.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði grein fyrir fundi með hlutaðeigandi. Erindinu vísað til gerðar aðalskipulags. Bókun fundar Afgreiðsla 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 með níu atkvæðum. -
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Lagt fram bréf frá Umhverfisstofnun sem minnir á 22. ársfund Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa sem haldinn verður fimmtudaginn 14. nóvember næstkomandi á Egilsstöðum. Bókun fundar Afgreiðsla 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 með níu atkvæðum.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 361 Lagt fram bréf frá Skipulagsstofnumn varðandi Skipulagsdaginn 8. nóvember nk. Skipulagsdagurinn er árleg ráðstefna helguð umræðu um skipulagsmál sem Skipulagsstofnun stendur fyrir í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er skipulag um framtíðina, samspil skipulags við áætlanagerð um byggð, samgöngur og nýtingu lands. Bókun fundar Afgreiðsla 361. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 með níu atkvæðum.