Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd - 160

Málsnúmer 1909029F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 389. fundur - 16.10.2019

Fundargerð 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar frá 2. október 2019 lögð fram til afgreiðslu á 389. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Ingibjörg Huld Þórðardóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Fundargerðir Siglingaráðs lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Lagðar fram til kynningar fundargerðir frá Hafnasambandi Íslands ásamt leiðbeiningum fyrir stjórnendur farþegaskipa sem koma til Íslands. Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Lagt var fyrir fundinn erindi frá smábátafélaginu Drangey varðandi löndunaraðstöðu fyrir smábáta í Sauðárkrókshöfn.
    Í erindinu segir m.a.:
    "Tilefni bréfsins er slæm löndunaraðstaða smábáta í Sauðárkrókshöfn, sem einkum tengist viðlegu togarans Drangeyjar þegar hún er í höfn. Að sumarlagi landa dag hvern að staðaldri um 10 smábátar á Sauðárkróki og þegar Drangey er í höfn er oft ekki hægt að koma fyrir meira en einum til tveimur bátum í rýminu við löndunarkrana smábátanna."
    Í niðurlagi erindis er þess óskað að á þessu ástandi verði fundin lausn.
    Nefndin felur hafnarstjóra að leita leiða til að verða við beiðni smábátafélagsins Drangey varðandi löndun smábáta. Nefndin bendir á að í skipulagsvinnu hafnasvæðis verður m.a. unnið að úrbótum á löndunaraðstöðu smábátasjómanna.
    Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Lagðar voru fyrir fundinn mögulegar útfærslur að flotbryggjum ætluðum m.a. til móttöku á léttabátum úr skemmtiferðaskipum í Sauðárkrókshöfn. Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður um 15 milljónir króna.
    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að gengið verði frá pöntun á flotbryggjueiningum samkvæmt tillögu 01 dags. 10. september 2019 og vísar málinu til afgreiðslu í byggðarráði. Nefndin leggur til að sá hluti kostnaðar sem fellur til árið 2019 verði greiddur af Hafnarsjóði.
    Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Lagt var fyrir nefndina erindi frá Rúnari Gíslasyni lögreglumanni á Sauðárkróki varðandi blint horn á Aðalgötu á Sauðárkróki. Segir þar m.a. að hætta geti skapast á þessu horni þegar lögreglumenn á leið á vettvang keyra út af bílastæði við lögreglustöðina. Lagt er til í erindinu að settur verði upp spegill á móts við innkeyrslu á bílastæðið til að minnka hættu á óhappi á þessum stað.
    Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur sviðstjóra að vinna að úrlausn málsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Rætt var um gerð gjaldskrár vegna efnistöku á Gránumóum við Sauðárkrók.
    Nefndin felur sviðstjóra að gera tillögu að gjaldskrá vegna efnistöku í malarnámum.
    Nefndin felur sviðstjóra að fara yfir svæðið á Gránumóum og fjarlægja rusl og annan úrgang sem ekki á heima á svæðinu, nefndin hvetur notendur svæðisins á Gránumóum að ganga snyrtilega um svæðið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Lagðar voru fyrir fundinn tilkynningar frá Vegagerðinni um niðurfellingu vega af vegaskrá. Ábyrgð Vegagerðarinnar á viðhaldi og þjónustu vega fellur niður á þeim vegum sem falla út af vegaskrá.
    Tilkynnt er um niðurfellingu eftirfarandi vega;
    Reykjarhólsvegur í Fljótum, 7853-01
    Reykjarhólsvegur í Fljótum, 7889-01
    Ysta-Mósvegur í Fljótum, 7858-01
    Lágmúlavegur á Skaga, 7456-01

    Nefndin felur sviðstjóra að kanna ástæður þess að Reykjarhólsvegur 7853-01 sé felldur út af vegaskrá.
    Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Lagður var fyrir tölvuóstur frá Guðbjörgu Steinunni Sigfúsdóttur varðandi umhverfismál í Varmahlíð.
    Nefndin felur garðyrkjustjóra að skoða umrædd svæði í Varmahlíð og koma með hugmyndir að fegrun og nýtingu svæðisins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Vinna við kortlagningu leiksvæða í Skagafirði er hafin og voru lögð fram drög á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 160 Lögð voru fyrir nefndarmenn drög að jafnréttisáætlun og aðgerðaráætlun í jafnréttismálum fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð.
    Nefndin ræddi efni áætlananna og fagnar vinnu við gerð jafnréttisstefnu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 160. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 með níu atkvæðum.