Umsagnarbeiðni reglugerð um stefnumótandi áætlun um málefni sveitarfélaga í samráðsgátt
Málsnúmer 1811318
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 847. fundur - 05.12.2018
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 30. nóvember 2018 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti þar sem ráðuneytið vekur athygli á að það hefur birt til umsagnar í samráðsgátt, drög að reglugerð um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga. Í reglugerðinni er kveðið á um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra leggi fram tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga fyrir Alþingi, að minnsta kosti á þriggja ára fresti til fimmtán ára í senn. Í stefnumótandi áætlun skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára.