Viðbrögð við kynferðislegri áreitni og einelti á vinnustöðum sveitarfélagsins
Málsnúmer 1002247
Vakta málsnúmerFélags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 156. fundur - 02.03.2010
Lögð fram drög að verklagsreglum um viðbrögð við einelti og kynferðislegri áreitni á vinnustöðum svoetarfélagsins, sbr. ákvæði í jafnréttisáætlun.
Nefndin ákveður að leita umsagnar allra sviðsstjóra sveitarfélagsins á drögunum fyrir næsta fund.
Framkvæmdaráð Skagafjarðar - 54. fundur - 15.03.2010
Minnt á skilafrest 15. mars fyrir umsagnir sviða um drög að viðbragðsáætlun.
Gunnar Sandholt, félagsmálastjóri, lagði fram tillögu að viðbragðsáætlun við einelti og kynferðislegri áreitni á vinnustöðum sveitarfélagsins. Farið yfir tillögur að málsmeðferð í slíkum málum. Málið er á leið til kynningar í Félags- og tómstundanefnd og reiknað með að nefndin óski umsagnar sviðsstjóra. Málið tekið aftur fyrir í ráðinu síðar.