Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

133. fundur 18. apríl 2008 kl. 10:00 - 12:15 í húsi Leiðbeiningarmiðstöðvarinnar, Skr.
Fundargerð ritaði: Sigurður Haraldsson, starfsmaður Landbúnaðarnefndar
Dagskrá

1.Ný veglína um Kjöl

Málsnúmer 0801058Vakta málsnúmer

Umsögn um Norðurveg. Landbúnaðarnefnd bendir á að fyrirhuguð veglína frá Gullfossi að Silfrastöðum liggur í gegnum bæði afréttarlönd og heimalönd bænda í Sveitarfélaginu Skagafirði. Mjög mikilvægt er að hafa gott samráð við landeigendur um lagningu vegarins og að legu hans verði þannig háttað að sem minnst röskun verði á landi. Mikilvægt að bygging ?fyrirhugaðs hálendisvegar? komi ekki niður á nauðsynlegum endurbótum og uppbyggingu á núverandi þjóðvegi 1.

2.Ársreikningur Upprekstrarfél. Eyvindarstaðaheiðar 2006

Málsnúmer 0804087Vakta málsnúmer

Bréf vegna ársreikninga Upprekstrarfélags Eyvindarstaðaheiðar. Samþykkt að fela Sigurði að leysa málið.

3.Aðalfundarboð Heiðadeildar Blöndu og Svartár

Málsnúmer 0805007Vakta málsnúmer

Einari falið að senda fulltrúa á fundinn.

4.Aðalfundarboð Veiðifél. Laxár, Skef. 2008

Málsnúmer 0804061Vakta málsnúmer

Einari falið að sjá um að senda fulltrúa á fundinn.

5.Bréf varðandi fyrirspurn um dýrheldni loðdýrabúa.

Málsnúmer 0805008Vakta málsnúmer

Bréf frá formanni atvinnumanna v/refa- og minkaveiðar. Lagt fram bréf frá Snorra á Augastöðum, dags. 3. apríl 08, er varðaði fyrirspurn um dýrheldni loðdýrabúa. Samþykkt að fela Einari að svara bréfinu og hafa samband við héraðsdýralækni.

6.Lagabreytingar v. EES-samnings, 524. mál - frumv.

Málsnúmer 0804076Vakta málsnúmer

Breytingar á reglum um innflutning á hráu kjöti. Ályktun Landbúnaðarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna innflutnings á kjöti: Landbúnaðarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir þungum áhyggjum vegna frumvarps til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I.kafla I. viðauka við EES samninginn og innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins. Frumvarpið felur í sér frjálsan innflutning á matvælum, meðal annars óunnu kjöti. Enginn vafi er á að þessi breyting mun koma kjötmarkaði hér á landi í mikið uppnám og verulegar líkur eru á neikvæðum áhrifum á íslenskan landbúnað og matvælaiðnað. Landbúnaðarnefnd leggur áherslu á sérstöðu íslenskrar búvöruframleiðslu, hér er lyfjanotkun lítil, heilbrigði búfjár gott og eftirlit með matvælum frá bónda til neytenda öflugt. Allt þetta hefur verið byggt upp og viðhaldið með hagsmuni neytenda að leiðarljósi. Ekki kemur fram hvernig koma eigi til móts við þær neikvæðu afleiðingar sem frumvarpið mun augljóslega hafa á íslenskan landbúnað og úrvinnslu afurða, né hvernig tryggja megi að neytendur fái áfram íslenskar gæðavörur á sem hagstæðustu verði. Landbúnaðarnefnd leggur því til að frumvarpinu verði frestað þar til mótvægisaðgerðir við afleiðingum lagasetninar af þessum toga liggi fyrir. Einnig að tryggja verði fjármuni til að allar búvörur á markaði hérlendis verði merktar sínu upprunalandi og að kröfur til innfluttra búvara verði þær sömu og gerðar eru til innlendra framleiðenda í dag. Einar E. Einarsson (sign) Ingibjörg Hafstað (sign) Sigríður Björnsdóttir (sign) Breytingar á dýralæknaumdæmum: Vegna þeirra breytinga sem fyrirhugaðar eru í umræddu frumvarpi og snúa að dýralæknaþjónustu vill Landbúnaðarnefnd bóka eftirfarandi: Landbúnaðarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir áhyggjum sínum vegna þess niðurskurðar sem fyrirhugaður er á fjármagni ríkisins til dýralæknaþjónustu á landsbyggðinni. Telur nefndin að þessi niðurskurður muni bæði leiða til verulegrar hækkunar á þjónustugjöldum starfandi dýralækna og til lakari þjónustu á strábýlli svæðum. Nefndin telur því að núverandi vaktagreiðslu fyrirkomulag til sjálfstætt starfandi dýralækna eigi að vera óbreytt. Einar E. Einarsson (sign) Ingibjörg Hafstað (sign) Sigríður Björnsdóttir (sign)

7.Gjaldskrá vegna refa- og minkaveiða

Málsnúmer 0805001Vakta málsnúmer

Gjaldskrá vegna refa- og minkaveiða. Samþ var eftirfarandi: Greiðsla til ráðinna veiðimanna: Hlauparefir kr. 7.500 pr. dýr Grendýr ? létt svæði kr. 13.500 pr. dýr Grendýr ? erfið svæði kr. 18.500 pr. dýr Einstakir veiðimenn kr. 2.500 hlaupadýr Minkur Greiðsla til ráðinna veiðimanna kr. 6.000 pr. dýr Einstakir veiðimenn kr. 1.500 pr. dýr

8.Svartárdeild - almennur félagsfundur

Málsnúmer 0802029Vakta málsnúmer

Einar gerði grein fyrir fundi í Veiðifélagi Svartár í Skagafirði og niðurstöðu hans.

9.Trúnaðarmál

Málsnúmer 0803013Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók.

10.Trúnaðarmál

Málsnúmer 0804070Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 12:15.