Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

197. fundur 26. mars 2018 kl. 13:00 - 13:55 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jóhannsson formaður
  • Guðný Herdís Kjartansdóttir áheyrnarftr.
  • Gunnar Valgarðsson varam.
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir varam.
Starfsmenn
  • Arnór Gunnarsson starfsmaður landbúnaðarnefndar
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir tók þátt í fundinum í gegnum síma.

1.Borgarey 146150

Málsnúmer 1411097Vakta málsnúmer

Landbúnaðarnefnd leggur til við byggðarráð að þegar að sölu Borgareyjar kemur verði upphafleg markmið kaupsamnings frá 1968 látin halda sér þ.e. landið verði nýtt til fóðuröflunar.

2.Aðalfundur Veiðifélagið Flóki

Málsnúmer 1803188Vakta málsnúmer

Lagt fram aðalfundarboð frá Veiðifélaginu Flóka, þann 31. mars 2018.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að Arnór Gunnarsson sæki fundinn og fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins.

3.Vindheimar ll stofnun lögbýlis

Málsnúmer 1801242Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 25. janúar 2018 frá Magnúsi Péturssyni f.h. Péturs Sigmundssonar, kt. 040859-4039 og Sofia Majdotter Dalman, kt. 260669-3119, eiganda jarðarinnar Vindheimar II í Skagafirði, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis.
Landbúnaðarnefnd sér ekkert því til fyrirstöðu að lögbýlið sé stofnað og mælir með að það hljóti staðfestingu sveitarstjórnar.

4.Umsagnarbeiðni tillaga til þingsályktunar um mótun eigendastefnu ríkisins fyrir bújarðir

Málsnúmer 1802170Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 15. febrúar 2018 frá nefndasviði Alþingis varðandi þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um um mótun eigendastefnu ríkisins fyrir bújarðir, 52. mál.

5.Upplýsingar varðandi Blöndu sem varnarlínu

Málsnúmer 1801163Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar auglýsing frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett 16. janúar 2018. Ákveðið er að leggja niður Blöndulínu sem varnarlínu og sameina Skagahólf og Húnahólf.

6.Varðandi nýjan samning Veiðifélags Miklavatns og Fljótaár - bændadagar

Málsnúmer 1803097Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf móttekið 8. mars 2018 frá Veiðifélagi Miklavatns og Fljótaár þar sem kynntur er nýr samningur milli veiðifélagsins og Veiðiklúbbs Íslands.

7.Ársreikningur 2016 Fjallsk.sj. Austur-Fljót

Málsnúmer 1712229Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur fyrir Fjallskilasjóð Austur-Fljóta fyrir árið 2016.

Fundi slitið - kl. 13:55.