Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

174. fundur 09. júlí 2014 kl. 10:00 - 12:51 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jóhannsson formaður
  • Jóhannes H Ríkharðsson aðalm.
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
  • Guðný Herdís Kjartansdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Arnór Gunnarsson starfsmaður landbúnaðarnefndar
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Margeir Friðriksson setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Samþykkt var að taka á dagskrá mál 1407038 Búfjárhald og ráðstöfun lands á Nöfum, mál 1406059 Kjör í fjallskilanefnd Seyluhrepps - úthluta og mál 1407078 Ársreikningur 2013 - Fjallskilasjóður Hóla- og Viðvíkurhrepps.
Gengið var til dagskrár.

1.Kjör formanns, varaformanns og ritara landbúnaðarnefndar

Málsnúmer 1407050Vakta málsnúmer

Borin var upp tillaga um Harald Þór Jóhannsson sem formann landbúnaðarnefndar, Jóhannes Ríkharðsson sem varaformann og Valdimar Sigmarsson sem ritara.
Landbúnaðarnefnd samþykkir tillöguna.
Haraldur Þór Jóhannsson tók við fundarstjórn.

2.Kjör fulltrúa fjallskilanefdar Hofsafréttar

Málsnúmer 1406061Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Hofsafréttar, þrír aðalmenn og varamenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Gísla Jóhannsson fjallskilastjóri, Steindór Búi Sigurbergsson varafjallskilastjóri og Borgþór Bragi Borgarsson.
Varamenn: Arnþór Traustason og Berta Finnbogadóttir.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

3.Kjör fulltrúa í búfjáreftirlitsnefnd Skagafjarðar og Siglufjarðar

Málsnúmer 1405181Vakta málsnúmer

Kjör fulltrúa í búfjáreftirlitsnefnd Skagafjarðar og Siglufjarðar, tveir aðalmenn og varamenn. Nefndin er skipuð fjórum fulltrúum: tveimur frá Sveitarfélaginu Skagafirði, einum frá Siglufirði (Fjallabyggð) og einum frá Akrahreppi.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Haraldur Þór Jóhannsson og Jóhannes H. Ríkharðsson.
Varamenn: Valdimar Sigmarsson og Ari Jóhann Sigurðsson.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þeir því réttkjörnir.

4.Kjör fulltrúa í fjallskiladeild Hrollleifsdals

Málsnúmer 1406049Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Hrollleifsdals, þrír aðalmenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Gestur Stefánsson fjallskilastjóri, Óskar Hjaltason varafjallskilastjóri og Eggert Jóhannsson.
Varamaður: Sigurlaug Kristín Eymundsdóttir.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

5.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd Austur-Fljóta

Málsnúmer 1406064Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Austur- Fljóta, þrír aðalmenn og varamaður.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Jóhannes Ríkharðsson, fjallskilastjóra, Jón Elvar Númason, varafjallskilastjóra og Guðmund Viðar Pétursson.
Varamaður: Þorsteinn Jónsson.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þeir því réttkjörnir.

6.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd Deildarsdals

Málsnúmer 1406051Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Deildardals, þrír aðalmenn og varamaður.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Loftur Guðmundsson fjallskilastjóri, Jón Kjartansson varafjallskilastjóri og Rúnar Páll Hreinsson.
Varamaður: Gísli Gíslason.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þeir því réttkjörnir.

7.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd framhluta Skagafjarðar.

Málsnúmer 1406062Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar framhluta Skagafjarðar, þrír aðalmenn og varamenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Gunnar Valgarðsson fjallskilastjóri, Björn Ófeigsson varafjallskilastjóri og Hlífar Hjaltason.
Varamenn: Hafdís Böðvarsdóttir, Smári Borgarsson og Arnór Gunnarsson.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

8.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd Hegraness, Rípurhrepps

Málsnúmer 1406054Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Hegraness, þrír aðalmenn og varamenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Lilja Björg Ólafsdóttir fjallskilastjóri, Jóhann Már Jóhannsson varafjallskilastjóri og Birgir Þórðarson.
Varamenn: Þórarinn Leifsson og Stefanía Birna Jónsdóttir.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

9.Kjör í fjallskilanefnd Hofsóss - Unadals

Málsnúmer 1406052Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Hofsós - Unadals.
Tillaga kom fram um að kjöri fjallskilanefndar verði frestað um eitt ár og að Arnór Gunnarsson starfsmaður nefndarinnar taki að sér fjallskilastjórnina þangað til.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast Arnór því réttkjörinn.

10.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd í Hóla- og Viðvíkurhrepps

Málsnúmer 1406053Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Hóla- og Viðvíkurhrepps, þrír aðalmenn og varamenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Atli Már Traustason fjallskilastjóri, Sólberg Logi Sigurbergsson varafjallskilastjóri og Sigurður Sigurðsson.
Varamenn: Jóhann Haraldsson og Víðir Sigurðsson.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þeir því réttkjörnir.

11.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd Sauðárkróks

Málsnúmer 1406057Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Sauðárkróks, þrír aðalmenn og varamenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Sigurjóna Skarphéðinsdóttir fjallskilastjóri, Þorbjörg Ágústsdóttir varafjallskilastjóri og
Stefán Jón Skarphéðinsson.
Varamenn: Stefán Öxndal Reynisson.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

12.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd Skarðshrepps

Málsnúmer 1406055Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Skarðshrepps, þrír aðalmenn og varamenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Úlfar Sveinsson fjallskilastjóri, Andrés Helgi Helgason varafjallskilastjóri, Andrés Viðar Ágústsson.
Varamenn: Ásta Einarsdóttir, Halla Guðmundsdóttir.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

13.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd Skefilstaðahrepps

Málsnúmer 1406056Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Skefilstaðahrepps, þrír aðalmenn og varamaður.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Steinn Leó Rögnvaldsson fjallskilastjóri, Halldóra Björnsdóttir varafjallskilastjóri og Jón Stefánsson.
Varamenn: Sveinfríður Á. Jónsdóttir og Merete Kristiansen Rabölle.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

14.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd Staðarhrepps

Málsnúmer 1406058Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Staðarhrepps, þrír aðalmenn og varamenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Jónína Stefánsdóttir fjallskilastjóri, Linda Jónsdóttir varafjallskilastjóri og Þröstur Erlingsson.
Varamenn: Friðrik Stefánsson og Skapti Steinbjörnsson.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

15.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd Vestur-Fljóta

Málsnúmer 1406063Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Vestur- Fljóta, þrír aðalmenn og varamenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Sigurður Steingrímsson fjallskilastjóra, Örn Albert Þórarinsson varafjallskilastjóra og Egill Þórarinsson.
Varamenn: Þorlákur Sigurbjörnsson, Rúnar Marteinsson.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þeir því réttkjörnir.

16.Kjör fulltrúa í Skarðsárnefnd

Málsnúmer 1405236Vakta málsnúmer

Skarðsárnefnd, tilnefnd af landbúnaðarnefnd, þrír aðalmenn og einn varamaður.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Valdimar Sigmarsson formaður, Sigurgeir Þorsteinsson varaformaður og Skapti Steinbjörnsson.
Varamaður: Jón Baldvinsson.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þeir því réttkjörnir.

17.Kjör fulltrúa í stjórn Staðarafréttar

Málsnúmer 1406060Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Staðarafréttar, fimm aðalmenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Jónína Stefánsdóttir, Bjarni Bragason, Sigurjóna Skarphéðinsdóttir, Úlfar Sveinsson og Lilja Ólafsdóttir.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

18.Kjör fulltrúa í fjallskilanefnd Seyluhrepps-úthluta

Málsnúmer 1406059Vakta málsnúmer

Kjör fjallskilanefndar Seyluhrepps - úthluta, þrír aðalmenn.
Tillaga kom fram um:
Aðalmenn: Bjarni Bragason fjallskilastjóri, Elvar Einarsson varafjallskilastjóri og Þuríður Þorbergsdóttir.
Varamenn: Haraldur Stefánsson, Ólafur Atli Sindrason.
Aðrar tillögur komu ekki fram og skoðast þau því réttkjörin.

19.Fjallskilareglugerð fyrir Skagafjarðarsýslu - endurskoðun

Málsnúmer 1310121Vakta málsnúmer

Haraldur Þór Jóhannsson kynnti það starf sem hefur verið unnið við endurskoðun á fjallskilaregugerð Skagafjarðarsýslu. Stefnt er að því að ljúka verkinu fyrir næstu áramót.

20.Samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Skagafirði

Málsnúmer 1307096Vakta málsnúmer

Kynnt drög að samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Skagafirði og umsagnir nefnda.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að ítreka beiðni um umsögn frá skipulags- og byggingarnefnd um drögin.

21.Vegur um land Borgareyjar

Málsnúmer 1404146Vakta málsnúmer

Rætt um vegagerð í Borgarey, en vegurinn þar verður illfær í haustbleytum.

22.Viðhald girðinga í sveitarfélaginu

Málsnúmer 1406240Vakta málsnúmer

Lagt fram ódagsett bréf frá Páli Rúnari Hreinssyni, sem barst 24. júní 2014, varðandi viðhald girðinga í sveitarfélaginu og þá sérstaklega meðfram vegum.
Landbúnaðarnefnd þakkar fyrir erindið og mun óska eftir því að fulltrúi Vegagerðarinnar komi til viðræðu á næsta fund nefndarinnar um leiðir til úrbóta.

23.Mælifellsrétt

Málsnúmer 1305263Vakta málsnúmer

Ingvar Páll Ingvarsson starfsmaður veitu- og framkvæmdasviðs kom á fundinn undir þessum dagskrárlið og skýrði stöðu mála varðandi Mælifellsrétt og fyrsta áfanga í endurgerð réttarinnar.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fara í vettvangsferð og skoða aðstæður. Einnig telur nefndin brýnt að gengið verði frá samningi við landeigendur sem fyrst.

24.Almannavarnaráætlun - landbúnaður

Málsnúmer 1407056Vakta málsnúmer

Brýnt er að gerð verði viðbragðsáætlun ef upp koma veðuraðstæður líkt og í september 2012.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fela Arnóri Gunnarssyni þjónustufulltrúa að kalla saman upplýsingafund með fjallskilastjórum, Landgræðslu ríkisins og formanni almannavarnarnefndar til að ræða beitarmál og náttúruvá.

25.Ársreikningur 2013 - Fjallskilasjóður Sauðárkróks

Málsnúmer 1404223Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Sauðárkróks fyrir árið 2013.

26.Ársreikningur 2013 - Upprekstrarfélag Eyvindarstaðaheiðar

Málsnúmer 1404224Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Upprekstrarfélags Eyvindarstaðaheiðar fyrir árið 2013.

27.Ársreikningur 2013 - Fjallskilasjóður Hegraness

Málsnúmer 1404226Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Hegraness fyrir árið 2013.

28.Ársreikningur 2013 - Fjallskilasjóður Hóla- og Viðvíkurhrepps

Málsnúmer 1407078Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Hóla- og Viðvíkurhrepps fyrir árið 2013.

29.Búfjáreign og ráðstöfun lands á Nöfum

Málsnúmer 1407038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 2. júlí 2014 frá Fjáreigendafélagi Sauðárkróks varðandi búfjáreign og ráðstöfun lands á Nöfum. Í bréfinu er rifjað er upp gamalt samkomulag milli sauðfjár- og hrossaeigenda á Sauðárkróki um búfjárhald á Nöfum, sem fjáreigendur telja að sé að gefa eftir.
Landbúnaðarnefnd bendir á að endurskoðun búfjárreglugerðar fyrir þéttbýlisstaði í sveitarfélaginu er í gangi.

Fundi slitið - kl. 12:51.