Fara í efni

Fræðslunefnd

14. fundur 09. maí 2023 kl. 15:45 - 16:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Regína Valdimarsdóttir formaður
  • Hrund Pétursdóttir varaform.
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Sólveig Arna Ingólfsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Jóhann Bjarnason skólastjóri grunnskóla
  • Ragnar Helgason sérfræðingur á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Bryndís Lilja Hallsdóttir nýráðinn sviðsstjóri fjölskyldusviðs sat fundinn.
Hrund Pétursdóttir sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Reglur um skólaakstur í dreifbýli Skagafjarðar

Málsnúmer 2304146Vakta málsnúmer

Reglur þessar eru lagðar fram að nýju í tengslum við útboð á skólaakstri sem nú er í gangi. Efnislegar breytingar eru engar en texti uppfærður með tilliti til m.a. vísana í eldra útboð.
Nefndin samþykkir reglurnar.

2.Reglur um skólasókn í öðru skólahverfi

Málsnúmer 2304147Vakta málsnúmer

Reglur um skólasókn í öðru skólahverfi í Skagafirði lagðar fram. Sú breyting er gerð að í stað þess að skólahverfi Árskóla sé skilgreint frá Birkihlíð er það nú skilgreint frá Gili. Er það gert til samræmis við önnur ákvæði um skil skólahverfa.
Nefndin samþykkir reglurnar eins og þær liggja fyrir.

3.Umsagnarbeiðni; Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu)

Málsnúmer 2304138Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna. Breytingarnar ná einkum til laga um skólahald sem og íþróttalaga og æskulýðslaga.

4.Umsagnarbeiðni; Frumvarp til laga um Mennta- og skólaþjónustu

Málsnúmer 2304139Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frumvarp um lög um mennta- og skólaþjónustu. Frumvarpið snýr að nýrri stofnun sem stofnuð verður á grunni Menntamálastofnunar.

5.Öryggismyndavélar

Málsnúmer 2209351Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að reglum um öryggismyndavélar, kostnað við uppsetningu þeirra og stöðu hvað varðar kaup á búnaði og uppsetningu.
Nefndin felur starfsfólki fjölskyldusviðs að vinna áfram að málinu.

Fundi slitið - kl. 16:45.