Fara í efni

Fræðslunefnd

11. fundur 09. febrúar 2023 kl. 16:30 - 18:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Regína Valdimarsdóttir formaður
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir aðalm.
  • Agnar Halldór Gunnarsson áheyrnarftr.
  • Ragnhildur Jónsdóttir varam.
Starfsmenn
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Sólveig Arna Ingólfsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Ásrún Leósdóttir áheyrnarftr. leiksk.kennara
  • Jóhann Bjarnason skólastjóri grunnskóla
  • Vildís Björk Bjarkadóttir áheyrnarftr. foreldra grunnsk.barna
Fundargerð ritaði: Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
Dagskrá

1.Skóladagatal leikskóla - sumarstarf í Ársölum 2023

Málsnúmer 2301042Vakta málsnúmer

Sem kunnugt er hefur mikið umbótastarf farið fram í leikskólum Skagafjarðar síðustu misseri. Tilgangur umbótanna er annars vegar að bæta starfsumhverfi starfsmanna og hins vegar að koma betur til móts við foreldra og samfélagið allt. Á fundi sínum þann 11. janúar s.l. samþykkti fræðslunefnd að hafa leikskólann Ársali opinn yfir sumartímann 2023 en bjóða foreldrum upp á að velja annað hvort fyrra eða seinna frí með tilteknum dagsetningum. Hér er kynnt könnun sem gerð var á meðal foreldra um tvískiptingu þessa. Könnun þessi staðfestir að slíkt fyrirkomulag hentar megninþorra foreldra. Könnunin leiðir fleiri áhugaverð svör í ljós, m.a. að meirihluti foreldra myndi lengja sumarfrí barna sinna ef dvalargjöld yrðu felld niður á þeim tíma. Könnunin staðfestir þær umræður og hugmyndir sem fræðslunefnd og starfsmenn hafa rætt og farið ítarlega yfir. Opnað verður fyrir bindandi skráningar í fyrra og seinna sumarleyfi á næstu dögum og verður opið fyrir skráningu til 26.febrúar. Vonast er til að fyrirkomulag þetta hjálpi til við skipulagningu starfsins og mönnun leikskólans.

2.Útboð hádegisverðar á Sauðárkrkóki 2023

Málsnúmer 2301162Vakta málsnúmer

Samningur sveitarfélagsins við Stá ehf. um kaup á hádegisverði í leik- og grunnskóla á Sauðárkrkóki rennur út 31. júlí 2023. Í samningnum eru ákvæði sem heimila framlengingu samningsins um eitt ár í senn tvisvar sinnum. Nefndin leggur til að hádegisverðurinn verði boðinn út nú í vor og veittur verði sá sveigjanleiki í útboðinu að bjóða í tvennu lagi, annars vegar hádegisverð í leikskóla og hins vegar hádegisverð í grunnskóla. Í útboðslýsingum skal lögð mikil áhersla á íslenskt/skagfirskt hráefni, heilsusamlegt mataræði og að lágmarka vistspor þjónustunnar með því m.a. að nýta sem mest hráefni úr heimabyggð. Auk þess verði gerð krafa um að rekstraraðilar veiti upplýsingar um uppruna, innihaldslýsingar og framleiðsluhætti þeirra vara sem boðið er upp á. Farið verði eftir ábendingum Landlæknisembættisins um samsetningu matartegunda og í hverjum skóla verði matseðlar yfirfarnir og samþykktir og að ákveðið samræmi sé á milli skólastiga hvort sem um ræðir einn eða tvo verktaka. Einnig er mikilvægt að leggja áherslu á sveigjanleika í útboðinu hvað varðar fjölda matarskammta með tilliti til starfstíma beggja skólastiga, leikskóla og grunnskóla. Fjöldi matarskammta eru á milli 650 - 700. Nefndin vísar tillögunni til sveitarstjórnar.

3.Útboð á skólaakstri í dreifbýli 2023

Málsnúmer 2301100Vakta málsnúmer

Samningar um skólaakstur í dreifbýli renna út 31.maí 2023 eftir 5 ára samningstíma. Taka þarf ákvörðun um útboð á akstrinum og samhliða yfirfara breytingar á akstursleiðum og hugsanlega fyrirkomulagi.
Reglur um skólaakstur í dreifbýli voru uppfærðar í október 2022 en ekki gerðar efnislegar breytingar á þeim tíma. Nefndin samþykkir að bjóða skólaaksturinn út og gefur sér tíma til að skoða reglurnar og mun afgreiða þær síðar. Nefndin vísar málinu til sveitarstjórnar.

4.Niðurstöður forerldrakönnunar á Árskóla

Málsnúmer 2302024Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar niðurstöður úr könnun sem Árskóli lagði fyrir foreldra um ýmsa mikilvæga þætti skólastarfs í Árskóla. Niðurstöðurnar gefa afar jákvæðar vísbendingar um mikla ánægju foreldra með skólann og veru barna þeirra í skólanum. Um leið og fræðslunefnd óskar Árskóla til hamingju með þessar glæsilegu niðurstöður vill nefndin ítreka að áfram verði hlúð vel að skólum í Skagafirði, líkt og gert hefur verið. Skólastarf og líðan barna í skóla er einn mikilvægasti mælikvarðinn um gott og heilbrigt samfélag.

5.Fundir í fræðslunefnd á vorönn 2023

Málsnúmer 2212041Vakta málsnúmer

Samþykkt var tillaga að fundatímum nefndarinnar þann 11. janúar 2023. Gera þarf breytingar á fundartímum og eftirfarandi tillaga löggð fram: 2. mars, 11. apríl, 2. maí, 6. júní. Nefndin samþykkir tillöguna.

6.Trúnaðarbók fræðslunefndar 2023

Málsnúmer 2302027Vakta málsnúmer

Þrjú mál tekin fyrir. Sjá trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 18:30.