Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

166. fundur 03. mars 2021 kl. 16:15 - 17:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Axel Kárason formaður
  • Elín Árdís Björnsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir ritari
  • Ragnhildur Jónsdóttir fulltrúi Akrahrepps
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Steinunn Ragnheiður Arnljótsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir áheyrnarftr. foreldra grunnsk.barna
  • Steinn Leó Sveinsson
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Steinn Leó Sveinsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, sat fundinn undir lið 2.

1.Staða biðlista á leikskólanum Tröllaborg

Málsnúmer 2103013Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu biðlista við leikskólann Tröllaborg á Hólum. Búist er við að hægt verði að taka öll eins árs börn og eldri inn næsta haust.

2.Ársalir skólabygging

Málsnúmer 2008143Vakta málsnúmer

Steinn Leó Sveinsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, kom á fundinn og kynnti hugmyndir að nýrri byggingu við leikskólann Ársali. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir einni deild, anddyri fyrir tvær deildir og starfsmannarými. Í seinni áfanga er gert ráð fyrir að annarri deild. Fræðslunefnd vill horfa til framtíðarlausna í uppbyggingu leikskóla á Sauðárkróki.

Fundi slitið - kl. 17:30.