Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

158. fundur 27. ágúst 2020 kl. 16:15 - 18:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Axel Kárason aðalm.
  • Elín Árdís Björnsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir ritari
  • Ragnhildur Jónsdóttir fulltrúi Akrahrepps
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Aðalbjörg Þorgrímsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Ásrún Leósdóttir áheyrnarftr. leiksk.kennara
  • Kristín Halla Bergsdóttir áheyrnarftr. foreldra leiksk.barna
  • Vildís Björk Bjarkadóttir áheyrnarftr. foreldra grunnsk.barna
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Skóladagatöl leikskóla 2020 - 2021

Málsnúmer 2006120Vakta málsnúmer

Skóladagatöl leikskólanna lögð fram. Vegna aðstæðna í kjölfar Covid þarf að gera breytingar á dagatölunum. Fræðslunefnd samþykkir þau og felur sviðsstjóra að ganga frá þeim í samræmi við umræður og upplýsingar sem fram komu á fundinum. Foreldraráð leikskólanna hafa fjallað um þau og samþykkt þau fyrir sitt leyti.

2.Skólaakstur leikskólabarna

Málsnúmer 2008189Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi um að 5 ára barn í Sveitarfélaginu Skagafirði fái að nýta skólabíl á milli heimils og leikskólans á Hofsósi. Skv. 5. grein reglna sveitarfélagsins um skólaakstur í dreifbýli er ekki heimilt að taka aðra farþega í bílinn en grunnskólanemendur, svo sem börn í leikskóla, nema með sérstöku samþykki fræðslunefndar. Hér er um að ræða barn sem á lögheimili í öðru sveitarfélagi. Vegalengd á milli heimilis og skóla er um 40 km. Fræðslunefnd telur mikilvægt að 5 ára börn í sveitarfélaginu hafi möguleika á að sækja leikskóla þar sem mikilvægur undirbúningur undir grunnskólagöngu fer fram. Svo hægt sé að samþykkja erindið þarf að liggja fyrir vilji skólabílstjóra til að aka barninu og jafnframt þarf að liggja fyrir að aksturinn hafi ekki aukalegan kostnað í för með sér fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð. Vegna leikskóladvalar þarf einnig að liggja fyrir samþykki lögheimilissveitarfélags um greiðslu hluta sveitarfélaga í kostnaði við leikskóladvöl.
Að uppfylltum ofangreindum skilyrðum samþykkir fræðslunefnd að barn þetta fái að nýta skólabílinn. Nefndin áskilur sér jafnframt rétt til að afturkalla heimildina þyki sýnt að samþykkt þessi valdi miklu óhagræði í akstrinum eða hafi aukalegan kostnað í för með sér fyrir sveitarfélagið.

3.Trúnaðarmál 2020-2021

Málsnúmer 2008183Vakta málsnúmer

Eitt mál á dagskrá. Samþykkt. Sjá trúnaðarbók.

4.Skólaganga í öðru skólahverfi

Málsnúmer 2008085Vakta málsnúmer

Borist hefur erindi frá móður barns í dreifbýli þar sem óskað er eftir því að barn viðkomandi hefji sína skólagöngu í Varmahlíðarskóla skólárið 2021 ? 2022 í stað Grunnskólans austan Vatna á Hólum, sem er skólahverfi viðkomandi samkvæmt búsetu. Samkvæmt reglum sveitarfélagsins um skólasókn í öðru skólahverfi skulu börn á grunnskólaaldri sækja skóla í sínu skólahverfi. Hins vegar er fræðslunefnd heimilt að veita undanþágu frá þeirri reglu ef málefnaleg sjónarmið liggja fyrir og skal sækja um undanþágu með skriflegri og rökstuddri beiðni til fræðslustjóra. Fræðslunefnd samþykkir að veita undanþágu vegna grunnskólagöngu barnsins með þeim skilyrðum að foreldrar sjái um skólaakstur ef gerðar verða breytingar á akstursleiðum að loknum samningstíma skv. útboði á skólaakstri árin 2018 ? 2023.

5.Samræmdar reglur um skólasókn í grunnskólum

Málsnúmer 2008112Vakta málsnúmer

Fræðsluþjónustan hefur í samstarfi við grunnskólastjóra unnið að gerð samræmdra reglna um skólasókn nemenda í grunnskólum í Skagafirði. Reglurnar gilda annars vegar um fjarvistir vegna leyfa og veikinda nemenda og hins vegar um fjarvistir/seinkomur og brottrekstur úr kennslustundum. Tilgangurinn er að samhæfa reglur um skólasókn nemenda með því að setja fram viðmið um skólasókn ásamt verklagsreglum um viðbrögð og eftirfylgni við ófullnægjandi skólasókn. Fræðslunefnd fagnar þessari vinnu og felur sviðsstjóra og fræðslustjóra að ljúka henni sem fyrst.

6.Samræmd próf

Málsnúmer 1906241Vakta málsnúmer

Lagðar voru fram niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 9. bekk í grunnskólum í Skagafirði sem fóru fram í mars s.l. Fræðslustjóri fór yfir helstu niðurstöður. Fræðslunefnd hvetur skólana til að rýna niðurstöður vel og bregðast við því sem betur má fara.

7.Ársskýrslur grunnskólanna skólaárið 2019 - 2020

Málsnúmer 2007017Vakta málsnúmer

Lagðar voru fram til kynningar ársskýrslur Árskóla og Varmahlíðarskóla fyrir skólaárið 2019-2020. Fræðslustjóri fór yfir skýrslurnar. Fræðslunefnd þakkar skýrslurnar og þakkar bæði stjórnendum og starfsfólki skólanna fyrir einstaka lausnamiðun, samstöðu og jákvæðni í starfi á fordæmalausum tímum í samfélaginu vegna Covid-19.

8.Sjálfsmatsskýrslur grunnskóla 2020

Málsnúmer 2007016Vakta málsnúmer

Lagðar voru fram sjálfsmatsskýrslur Árskóla og Varmahlíðarskóla. Fræðslustjóri fór yfir skýrslurnar og kynnti helstu niðurstöður. Fræðslunefnd fagnar faglegum vinnubrögðum grunnskólanna.

9.Fundir fræðslunefndar haust 2020

Málsnúmer 2008154Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd samþykkir að fundir nefndarinnar til áramóta verði sem hér segir: 16. september, 14. október, 10. nóvember og 2. desember.

Fundi slitið - kl. 18:00.