Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

153. fundur 18. febrúar 2020 kl. 16:15 - 18:10 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Laufey Kristín Skúladóttir formaður
  • Elín Árdís Björnsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir ritari
  • Auður Björk Birgisdóttir áheyrnarftr.
  • Ragnhildur Jónsdóttir fulltrúi Akrahrepps
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Bertína Guðrún Rodriguez sérfræðingur á fjölskyldusviði
  • Jóhann Bjarnason skólastjóri grunnskóla
  • Aðalbjörg Þorgrímsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Álfhildur Leifsdóttir
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir
Fundargerð ritaði: Bertina G. Rodriguez sérfræðingur á fjölskyldusviði
Dagskrá

1.Rekstur stofnana 04 árið 2019

Málsnúmer 2002076Vakta málsnúmer

Farið yfir bráðabirgðaniðurstöðu rekstrar fyrir málaflokk 04, fræðslumál, fyrir rekstrarárið 2019. Fræðslunefnd fagnar þeim góða árangri sem náðst hefur með nákvæmri áætlanagerð og mikilli eftirfylgni með rekstri. Ástæða er til að hrósa stjórnendum stofnana og starfsmönnum fjölskyldusviðs fyrir reglubundna yfirferð og aðgætni í rekstri en um leið hvetja til enn meiri árvekni gagnvart samþykktri fjárhagsáætlun.

2.Framkvæmda- og viðhaldsáætlun í 04 árið 2020

Málsnúmer 2002077Vakta málsnúmer

Farið var yfir framkvæmda- og viðhaldsáætlun ársins 2020 fyrir málaflokk 04, fræðslumál. Fræðslunefnd fagnar þeim verkefnum sem áætluð eru á árinu, ekki síst nýbyggingu leikskóla á Hofsósi, en ráðgert er að framkvæmdir hefjist strax í mars eða apríl. Þá ber einnig að fagna áformum um hönnun íþróttahúss á Hofsósi, viðbyggingu við leikskólann á Sauðárkróki, hönnun lóðar við Árskóla og hönnun skólamannvirkja í Varmahlíð. Nefndin lýsir einnig yfir ánægju vegna áforma um skiptingu lóðar við Ársali- eldra stig og gróðursetningu skjólbeltis þar. Mörg smærri verkefni er að finna á framkvæmda- og viðhaldslistanum sem öll stuðla að bættri aðstöðu skólanna. Fræðslunefnd væntir þess að öll þessi verkefni komist til framkvæmda á árinu.

Fundi slitið - kl. 18:10.