Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

119. fundur 09. febrúar 2017 kl. 14:00 - 15:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Þórdís Friðbjörnsdóttir formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir varaform.
  • Sigurjón Þórðarson ritari
  • Björg Baldursdóttir áheyrnarftr.
  • Sigríður Garðarsdóttir fulltrúi Akrahrepps
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir skólafulltrúi
  • Bertína Guðrún Rodriguez verkefnastjóri á fjölskyldusviði
  • Jóhann Bjarnason skólastjóri grunnskóla
  • Eyrún Berta Guðmundsdóttir áheyrnarftr. leiksk.kennara
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Leikskóli og dagforeldrar á Sauðárkórki - biðlisti

Málsnúmer 1702039Vakta málsnúmer

Staða leikskóla- og dagforeldramála á Sauðárkróki kynnt. Samþykkt að auglýsa eftir dagforeldrum til starfa. Jafnframt er samþykkt að leita allra leiða til að leysa þann vanda sem upp er kominn í dagvistunarmálum m.a. með því að gera starf dagforeldra fýsilegra.

2.Leikskólinn á Hofsósi

Málsnúmer 1608223Vakta málsnúmer

Leikskólamál á Hofsósi kynnt. Þar sem ekki gekk að koma leikskólanum fyrir í íbúð í eigu sveitarfélagsins, eins og áformað var, leggur nefndin til að skoðað verði að koma leikskólanum tímabundið inn í Höfðaborg. Jafnframt er samþykkt að auglýsa eftir dagforeldrum til starfa á Hofsósi.

3.Samræmd próf og Pisa 2016

Málsnúmer 1701165Vakta málsnúmer

Niðurstöður samræmdra prófa 2016 og Pisa könnunar 2015 lagðar fram. Nefndin fagnar niðurstöðu skagfirskra skóla í samræmdu prófunum og hvetur til umræðu og áherslu á árangur í næstu Pisa könnun sem lögð verður fyrir árið 2018. Nefndin hvetur til að skólasamfélagið taki til umræðu kannanir og námsárangur á næsta fræðsludegi.

Eyrún Berta Guðmundsdóttir vék af fundi eftir liði 1 og 2.

4.Ósk um leigu á Sólgarðaskóla sumarið 2017

Málsnúmer 1612056Vakta málsnúmer

Lagt er fram erindi frá Erni Þórarinssyni um leigu á Sólgarðaskóla til reksturs ferðaþjónustu í sumar. Nefndin, í samráði við formann félags- og tómstundanefndar, leggur til að auglýst verði eftir aðilum til að leigja Sólgarðaskóla og annast umsjón með sundlauginni á Sólgörðum.

5.Leiga á Sólgarðaskóla og umsjón með sundlaug sumarið 2017

Málsnúmer 1701104Vakta málsnúmer

Lögð er fram ósk frá Kristínu Sigurrós Einarsdóttur og Alfreð Símonarsyni um leigu á Sólgarðaskóla og sundlauginni á Sólgörðum til reksturs ferðaþjónustu í sumar. Nefndin, í samráði við formann félags- og tómstundanefndar, leggur til að auglýst verði eftir aðilum til að leigja Sólgarðaskóla og annast umsjón með sundlauginni á Sólgörðum.

Jóhann Bjarnason sat fundinn undir liðum 3, 4 og 5.

Fundi slitið - kl. 15:45.