Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

294. fundur 19. október 2021 kl. 15:00 - 16:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir formaður
  • Atli Már Traustason varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
  • Guðrún Helga Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi Akrahrepps
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
  • Erla Hrund Þórarinsdóttir sérfræðingur á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Erla Hrund Þórarinsdóttir sérfræðingur á fjölskyldusviði
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2022

Málsnúmer 2110027Vakta málsnúmer

Rammi fyrir fjárhagsáætlun ársins 2022 til fyrri umræðu lagður fram fyrir félagsþjónustu annars vegar og frístundaþjónustu hins vegar sem og skipting rammans niður á stofnanir. Skiptingin tekur mið af fjárhagsáætlun þessa árs með viðaukum. Þá eru lagðar fram gjaldskrár sem taka þarf afstöðu til fyrir síðari umræðu. Farið var yfir forsendur rammans og þær ræddar. Félags- og tómstundanefnd felur sviðsstjóra og starfsmönnum sviðsins að vinna að frekari útfærslu með hliðsjón af verkefnum stofnana og rekstri. Ákveðið var að halda vinnufund á milli fyrri og síðari umræðu.Félags- og tómstundanefnd vísar áætluninni eins og hún liggur fyrir nú til byggðarráðs.

2.Hvatapeningar - tillaga um hækkun

Málsnúmer 2110129Vakta málsnúmer

Fulltrúar í félags- og tómstundanefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar leggja til að Hvatapeningar sem ætlaðir eru til niðurgreiðslu íþrótta- og tómstundastarfs barna á aldrinum 5-18 ára með lögheimili í sveitarfélaginu, hækki úr 25.000 krónum í 40.000 krónur frá og með 1. janúar 2022. Reglur um Hvatapeninga sem samþykktar voru á fundi nefndarinnar þann 7. nóvember 2019 verða óbreyttar.
Ástæða er til að fagna samstöðu um þetta mál, enda mikilvægt að styðja enn frekar við íþrótta- og tómstundaiðkun barna. Málinu vísað til byggðarráðs.

Fundi slitið - kl. 16:45.