Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

272. fundur 28. nóvember 2019 kl. 14:00 - 16:10 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir formaður
  • Atli Már Traustason varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
  • Guðrún Helga Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi Akrahrepps
  • Sigurjón Viðar Leifsson varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
  • Bertína Guðrún Rodriguez verkefnastjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir
  • Regína Valdimarsdóttir
  • Álfhildur Leifsdóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Bertina Rodriguez sérfræðingur á fjölskyldusviði
Dagskrá

1.Jólahlaðborð Rotaryklúbbs Sauðárkróks

Málsnúmer 1911091Vakta málsnúmer

Rótarýklúbbur Sauðárkróks óskar eftir að fá afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust þann 30. nóvember n.k. vegna jólahlaðborðs Rótarýklúbbsins sem þar hefur verið haldið undanfarin ár. Nefndin samþykkir að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa.

2.Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur 2020

Málsnúmer 1910275Vakta málsnúmer

Lagt er til að upphæð niðurgreiðslna skv. 6. gr. reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og um foreldragreiðslur hækki um 2,5%. Niðurgreiðsla verður þó aldrei hærri en sem nemur mismun á heildargjaldi vistunar hjá dagforeldri og í leikskóla ( gæsla, kostnaður og fæði). Vísað til byggðráðs.

3.Skipulag þjónustu við fatlað fólk í búsetu

Málsnúmer 1911187Vakta málsnúmer

Kynntar voru fyrirhugaðar breytingar á skipulagi þjónustu við fatlað fólk í sólahringsþjónustu á Sauðárkróki.

4.Trúnaðarbók Félags- og tómstundanefndar 2019

Málsnúmer 1902123Vakta málsnúmer

Eitt mál tekið fyrir. Erindinu synjað.
Þorvaldur Gröndal, Bertína Rodriguez og Guðrún Helga Jónsdóttir véku af fundi undir þessum lið

5.Dagforeldrar og biðlistar haust 2019

Málsnúmer 1908041Vakta málsnúmer

Lagt er til að ákvörðun félags- og tómstundanefndar frá 26.08.2019 um heimild til að greiða Guðrúnu Erlu Sigursteinsdóttur, dagforeldri, tímabundið auknar niðurgreiðslur til 1.nóvember verði framlengd til 31. desember 2019.

Þorvaldur Gröndal og Guðrún Jónsdóttir sátu fundinn undir liðum 1, 2, 3, 5 og 6

6.Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2020

Málsnúmer 1910115Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlanir fyrir málaflokka 02, almenna og sértæka félagsþjónustu og 06, frístundaþjónustu, lagðar fram til seinni umræðu í nefndinni.
Félags og tómstundanefnd samþykkir áætlanirnar fyrir sitt leyti en ítrekar að mikilvægt sé að vinna að leiðréttingu framlaga ríkisins vegna málefna fatlaðs fólks. Óásættanlegt er með öllu að framlög ríkisins séu langt undir þeirri þjónustuþörf sem fyrir hendi er í málefnum fatlaðs fólks svo munar tugum milljóna króna. Nefndin hvetur sveitarstjórn til viðræðna við hlutaðeigandi ráðuneyti vegna þessa.
Nefndin samþykkir áætlanirnar og vísar þeim til byggðarráðs og síðari umræðu í sveitarstjórn. Nefndin vill koma á framfæri þökkum til starfsmanna fyrir mikla og góða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar árið 2020.

Fundi slitið - kl. 16:10.