Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

260. fundur 01. nóvember 2018 kl. 15:00 - 17:10 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir formaður
  • Atli Már Traustason varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
  • Bertína Guðrún Rodriguez verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Bertína Rodriguez, sérfræðingur á fjölskyldusviði
Dagskrá

1.Jólahlaðborð Rotaryklúbbs Sauðárkróks 2018

Málsnúmer 1810173Vakta málsnúmer

Rótarýklúbbur Sauðárkróks óskar eftir að fá afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust þann 1. desember n.k. vegna jólahlaðborðs Rótarýklúbbsins sem þar hefur verið haldið undanfarin ár. Nefndin samþykkir að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa.

2.Hellisbúinn 3. nóvember 2018

Málsnúmer 1810175Vakta málsnúmer

Körfuknattleiksdeild Tindastóls óskar eftir að fá afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 3. nóvember, vegna leiksýningar sem haldin er til fjáröflunar fyrir deildina. Nefndin samþykkir að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa.

3.Opnunartími sundlauga 2019

Málsnúmer 1810176Vakta málsnúmer

Farið var yfir mismunandi útfærslur á opnunartíma sundlauga sveitarfélagsins árið 2019. Nefndarmenn vilja skoða þessar útfærslur betur og afgreiða málið á næsta fundi.

4.Dagdvöl aldraðra 20 ára

Málsnúmer 1810180Vakta málsnúmer

Þann 20. nóvember næstkomandi eru 20 ár síðan Dagdvöl aldraðra hóf starfsemi sína. Ráðgert er að halda upp á þessi tímamót fimmtdaginn 22. nóvember og föstudaginn 23. nóvember. Almenningi gæfist þá kostur að fylgjast með og kynnast starfsemi Dagdvalar, föndurstofa yrði opin og þjónustuþegar verða við vinnu sína.

5.Beiðni um fund vegna málefna eldri borgara í Fljótum

Málsnúmer 1809360Vakta málsnúmer

Farið var yfir fund sem haldin var á Ketilási fimmtudaginn 25. október s.l. með íbúa- og átthagafélagi Fljóta og starfsmönnum sveitarfélagsins. Tilgangur fundarins var að kynna eldri borgurum svæðisins lögbundnar skyldur sveitarfélagsins. Sveitarfélaginu er skylt skv. lögum að tryggja öldruðum aðgang að félags- og tómstundastarfi og eru eldri borgarar í Fljótum hvattir til þess að skoða hvort það sé áhugi fyrir því að koma upp félagsstarfi í Fljótum. Sviðstjóra og félagsmálastjóra er falið að fylgja eftir umræðum fundarins í Fljótum.

6.Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2019

Málsnúmer 1809249Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun fyrir málaflokkana 02 og 06 var kynnt og farið yfir rekstur stofnana. Félags- og tómstundanefnd felur sviðsstjóra og starfsmönnum fjölskyldusviðs að vinna áfram að áætluninni og leggja fyrir næsta fund.

7.Trúnaðarbók Félags- og tómstundanefndar 2018

Málsnúmer 1802215Vakta málsnúmer

Þrjú mál lögð fyrir fundinn. Niðurstaða færð í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 17:10.