Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

258. fundur 13. september 2018 kl. 14:00 - 15:40 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir formaður
  • Atli Már Traustason varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
  • Gunnar M Sandholt
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
  • Stefán Vagn Stefánsson
  • Gísli Sigurðsson
  • Bjarni Jónsson
  • Ólafur Bjarni Haraldsson
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Tilmæli Persónuverndar vegna notkunar samfélagsmiðla í skóla- og frístundastarfi

Málsnúmer 1809073Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi til kynningar frá Persónuvernd um notkun samfélagsmiðla. Persónuvernd beinir þeim tilmælum til leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, íþróttafélaga og allra annarra opinberra aðila og einkaaðila, sem koma að starfi með börnum, að þeir noti ekki Facebook, eða sambærilega miðla, sem samskiptamiðla fyrir miðlun persónuupplýsinga um ólögráða börn, hvort heldur sem um almennar eða viðkvæmar persónuupplýsingar þeirra er að ræða.
Sveitarfélagið Skagafjörður vinnur nú að innleiðingu nýrra laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sem m.a. tekur til notkunar samfélagsmiðla. Erindinu vísað til starfshóps sveitarfélagsins um innleiðingu laganna.
Þorvaldur Gröndal, frístundastjóri, sat fundinn undir þessum lið.

2.Beiðni um hoppubelg við sundlaug Sauðárkróks

Málsnúmer 1706236Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Maríu Óskar Ólafsdóttur um hoppubelg við sundlaug Sauðárkróks. Erindið áður á dagskrá nefndarinnar þann 12. júlí 2017. Nefndin þakkar Maríu Ósk þann áhuga sem hún sýnir á að koma upp hoppubelg og lýsir vilja sínum til að koma að uppsetningu hans líkt og gert hefur verið í Varmahlíð og á Hofsósi en þar var safnað fyrir belgnum og sveitarfélagið sá um kostnað við uppsetningu.
Þorvaldur Gröndal, frístundastjóri, sat fundinn undir þessum lið.

3.Sundlaugin á Sólgörðum haust 2018

Málsnúmer 1808125Vakta málsnúmer

Í framhaldi af bókun nefndarinnar á fundi sínum þann 23. ágúst sl. er lagt til að sundlaugin á Sólgörðum verði opin í 10 tíma í viku yfir vetrarmánuðina. Opnunartíminn verði ákveðinn í samráði við heimamenn á svæðinu. Áætlaður kostnaður vegna þessa fram til áramóta eru rúmar 400 þúsund krónur sem teknar verða af liðum 06. Félags- og tómstundanefnd samþykkir erindið og vísar því jafnframt til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Þorvaldur Gröndal, frístundastjóri, sat fundinn undir þessum lið.

4.Sundlaugin á Hofsósi, lenging sumaropnunar 2018

Málsnúmer 1808126Vakta málsnúmer

Samþykkt hefur verið aukafjárveiting vegna lengri opnunar sundlaugarinnar á Hofsósi í september mánuði. Auglýsingar eftir starfsmönnum vegna þessa hafa ekki borið árangur en engu að síður er vonast er til að hægt verði að ganga frá ákvörðun um lengri opnunartíma á allra næstu dögum.
Þorvaldur Gröndal, frístundastjóri, sat fundinn undir þessum lið.

5.Hvatapeningar - tillaga um hækkun

Málsnúmer 1809132Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga frá Sigurlaugu Vordísi Eysteinsdóttur um hækkun hvatapeninga í 30.000 krónur frá og með 1. janúar 2019. Tillaga þessi er í góðum samhljómi við vilja meirihluta sveitarstjórnar sbr. samstarfssamning hans. Félags- og tómstundanefnd leggur áherslu á að mikilvægt er að hækkun hvatapeninga skili sér beint til heimilanna. Því er lagt til að reglur um hvatapeninga verði endurskoðaðar og jafnframt verið hafnar viðræður á milli sveitarfélagsins og UMSS um fyrirkomulag stuðnings við íþróttaiðkendur annars vegar og íþróttafélögin hins vegar. Þeirri vinnu verði lokið fyrir gerð fjárhagsáætlunar næsta árs og tillögur um hækkun hvatapeninga verði teknar til afgreiðslu við gerð hennar. Félags- og tómstundanefnd mun óska eftir fundi með stjórn UMSS um málið.
Þorvaldur Gröndal, frístundastjóri, sat fundinn undir þessum lið.

6.Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning

Málsnúmer 1809133Vakta málsnúmer

Rætt hefur verið um að hækka tekju- og eignamörk við útreikning sérstaks húsnæðisstuðnings. Tekjumörk í reglum sveitarfélagsins um sérstakan húsnæðisstuðning leiða til þess að fáir umsækjendur fá sérstakan húsnæðisstuðning og því ná reglurnar illa þeim tilgangi sínum að létta undir með tekjulágum leigjendum á almennum leigumarkaði. Lagt er til að félags- og tómstundanefnd feli sviðsstjóra að gera tillögu að breyttum viðmiðunarmörkum og skoði sérstaklega viðmið Íbúðalánasjóðs varðandi almennar húsnæðisbætur. Einnig verði reglurnar yfirfarnar með hliðsjón af leiðbeiningum ráðuneytisins og tekin verði afstaða til verklags varðandi matsviðmið og stigagjöf. Málið verði tekið til meðferðar að nýju við gerð fjárhagsáætlunar 2019.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, félagsmálastjóri og Gunnar Sandholt, verkefnastjóri, sátu fundinn undir þessum lið.

7.Jafnréttisáætlun 2018-2022

Málsnúmer 1809026Vakta málsnúmer

Undirbúningur að gerð Jafnréttisáætlunar fyrir árin 2018-2022 er í gangi sbr. meðfylgjandi minnisblað. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja fram drög að áætluninni samhliða gerð fjárhagsáætlunar. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að allar fastanefndir komi að gerð áætlunarinnar. Ítrekað er að Jafnréttisáætlun er lögbundin, stefnumótandi áætlun sem ná þarf til allrar starfsemi sveitarfélagsins.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, félagsmálastjóri og Gunnar Sandholt, verkefnastjóri, sátu fundinn undir þessum lið.

8.Trúnaðarbók Félags- og tómstundanefndar 2018

Málsnúmer 1802215Vakta málsnúmer

Tekin fyrir ein umsókn. Niðurstaða færð í trúnaðarbók.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, félagsmálastjóri og Gunnar Sandholt, verkefnastjóri, sátu fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 15:40.