Helena Margrét Áskelsdóttir og Anna Birna Þorvarðardóttir frá VSÓ ráðgjöf og Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sátu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
Á 3. fundi byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki þann 22. janúar sl. var það samþykkt að bjóða Arkís arkitektum ehf, VSB verkfræðistofu ehf. og Yrki arkitektum ehf. þáttökurétt í lokaðri hönnunarsamkeppni, sem er þrep II í útboði menningarhúss í Skagafirði.
Helena lagði fram drög að útboðsgögnum fyrir þrep II. Annars vegar er um að ræða tilboðsblað og tilboðsskrá og hins vegar útboðslýsingu.
Byggingarnefnd samþykkir einnig samhljóða framlagða útboðslýsingu ásamt fylgiskjölum með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að bjóða út verkið.