Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

935. fundur 14. október 2020 kl. 11:30 - 12:47 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Stefán Vagn Stefánsson varaform.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá

1.Starfshópur um aðgerðir til eflingar nýsköpunar í Skagafirði

Málsnúmer 2005008Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 934. fundar þann 7. október 2020. Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að Sigfús Ólafur vinni áfram að verkefninu í samræmi við umræður á fundinum.

2.Rekstrarupplýsingar 2020

Málsnúmer 2009064Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um rekstur sveitarfélagsins tímabilið janúar-ágúst 2020.

3.Útsvarshlutfall árið 2021

Málsnúmer 2010086Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að hlutfallstala útsvars í Sveitarfélaginu Skagafirði á árinu 2021 verði 14,52%, sem er óbreytt hlutfall frá árinu 2020.
Byggðarráð samþykkir að útsvarshlutfall ársins 2021 verði 14,52% og vísar til staðfestingar sveitarstjórnar.

4.Vegna útreiknings framlaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Málsnúmer 2010057Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 7. október 2020 frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga varðandi útreikning framlaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts.

5.Samgönguminjasafn Skagafjarðar - slökkvibifreið

Málsnúmer 2009214Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 22. september 2020 frá Samgönguminjasafni Skagafjarðar í Stóragerði varðandi fyrstu slökkvibifreiðina, sem kom í héraðið og er í eigu sveitarfélagsins, og safnið hafði til sýningar í sumar sem leið.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera samning við Samgönguminjasafn Skagafjarðar um sýningu og umsjón slökkvibifreiðarinnar.

6.Umsókn um langtímalán 2020

Málsnúmer 2002019Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð allt að 191.227.000 kr. til allt að 15 ára. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til framkvæmda eignasjóðs og hitaveitu og vegna endurfjármögnunar afborgana eldri lána hjá Lánasjóðinum, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Sigfúsi Inga Sigfússyni, kt. 031175-5349, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 98 2004 um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku

Málsnúmer 2010046Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 6. október 2020 þar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 208/2020, "Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 98/2004, um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku (verðlagshækkun jöfnunargjalds raforku)". Umsagnarfrestur er til og með 20.10.2020.

Fundi slitið - kl. 12:47.