Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

869. fundur 05. júní 2019 kl. 11:30 - 14:32 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson áheyrnarftr.
  • Regína Valdimarsdóttir varam.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Freyjugata Sauðárkróki - umsókn um lóð - Freyjugötureitur

Málsnúmer 1905113Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 26. apríl 2019, frá Hrafnshóli ehf., þar sem félagið sækir um lóðina "Freyjugötureit" á Sauðárkróki til að þróa og byggja þar íbúðarhúsnæði á næstu árum. Óskað er eftir að úthlutunin gildi til allt að 10 árum, samkvæmt nánara samkomulagi. Fulltrúar Hrafnshóls ehf., Sigurður Garðarsson og Ómar Guðmundsson komu á fund byggðarráðs til viðræðu ásamt fulltrúum skipulags- og byggingarnefndar, Einari E. Einarssyni og Álfhildi Leifsdóttur auk skipulags- og byggingarfulltrúa Jóni Erni Berndsen.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna drög að samningi við Hrafnshól ehf. vegna lóðarinnar.

2.Götulýsing í Sveitarfélaginu Skagafirði

Málsnúmer 1904132Vakta málsnúmer

Erindið áður á 866. fundi byggðarráðs þann 15. maí 2019. Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. apríl 2019 frá RARIK ohf. þar sem óskað er eftir viðræðum um að Sveitarfélagið Skagafjörður taki yfir götulýsingarkerfi sem RARIK hefur rekið í sveitarfélaginu. Helga Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs RARIK kom á fundinn og kynnti erindið.
Regína Valdimarsdóttir vék af fundi kl. 13:55.

3.Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2040

Málsnúmer 1906041Vakta málsnúmer

Málið rætt og samþykkt að fresta afgreiðslu til næsta fundar byggðarráðs.

4.Beiðni um lækkun fasteignaskatts

Málsnúmer 1905232Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn dagsett 21. maí 2019, frá stjórn Villa Nova ehf. um styrk til greiðslu fasteignaskatts skv. 2. mgr., 5. gr. laga nr. 4/1995.
Byggðarráð samþykkir að veita styrk sem nemur 30% af fasteignaskatti ársins 2019 skv. 5. gr. reglna sveitarfélagins um styrki til greiðslu fasteignaskatts.

5.Aðalgata 7 - Sótt um breytingu á rekstrarleyfi

Málsnúmer 1903117Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. mars 2019, úr máli 1903184 hjá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Óskað er eftir umsögn um umsókn Tómasar Árdal, kt. 210959-5489, Lerkihlíð 6, Sauðárkróki, f.h. Stá ehf., kt.520997-2029, um breytingu á gildandi rekstrarleyfi. Stá ehf. er með veitingaleyfi í flokki III og óskar eftir að fara í gistileyfi í flokki V, svefnpokagisting, að Aðalgötu 7 (Mælifell), 550 Sauðárkrókur.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Bjarni Jónsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu málsins.

6.Flugklasinn Air 66N þátttaka í verkefninu

Málsnúmer 1905259Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 31. maí 2019 frá Markaðsstofu Norðurlands. Óskað er eftir áframhaldandi stuðningi sveitarfélagsins við verkefnið "Flugklasinn Air 66N" árin 2020-2023. Markmið klasans er að koma á beinu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll allt árið um kring til framtíðar.
Byggðarráð samþykkir að styðja áfram við verkefnið og styrkir það um 300 kr. pr. íbúa árið 2020 og felur sveitarstjóra að óska eftir því að forsvarsmenn flugklasans komi á fund byggðarráðs til viðræðu um verkefnið.

Fundi slitið - kl. 14:32.