Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

823. fundur 12. apríl 2018 kl. 08:30 - 11:27 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Lokun á skarði í Bæjarmöl við Höfðavatn

Málsnúmer 1803170Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 822. fundar byggðarráðs þann 5. apríl 2018. Lagt fram bréf dagsett 16. mars 2018 frá landeigendum bæja sem liggja að Höfðavatni á Höfðaströnd. Óska þeir eftir fjárhagslegum stuðningi við landfyllingu á Bæjarmöl við Höfðavatn í Skagafirði. Tilgangur framkvæmdanna er að loka skarði sem hefur myndast og sjór flæðir inn í vatnið og seltustig þess er að nálgast seltustig sjávar með tilheyrandi skaða. Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 1 milljón krónur og taka fjármagnið af málaflokki 11 - umhverfismál.

2.Samstarfssamningur um uppbyggingu sýndarveruleikasýningar á Sauðárkróki

Málsnúmer 1803025Vakta málsnúmer

Sjá bókun í trúnaðarbók.

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Bjarni Jónsson óska bókað:
Við undirrituð lýsum áhyggjum okkar af málsmeðferð sveitarfélagsins að því er varðar samning þess um uppbyggingu og stuðning við Sýndarveruleika ehf. Teljum við að fjölmörgum spurningum sé ósvarað um verkefnið sem helgast meðal annars af því hversu takmarkaðar upplýsingar hafa verið veittar. Í þessu sambandi bendum við á nauðsyn þess áður en lengra er haldið við afgreiðslu málsins að farið sé vandlega yfir lagaleg atriði, t.d. hvort sveitarfélagið hafi fullnægjandi lagaheimildir til þessara ráðstafana og hvort stuðningur þess feli í sér ólögmæta fjárhagsaðstoð við við einkaaðila í samkeppnisrekstri. Þá þarf sérstaklega að gæta að því að farið sé að leikreglum stjórnsýslulaga, þannig að íbúarnir og fyrirtæki í sveitarfélaginu njóti jafnræðis þegar kemur að ráðstöfun eigna og aðgangi að fjármunum og auðlindum sveitarfélagsins. Við óskum eftir því að þessi atriði verði skoðuð vandlega og niðurstöður athugana verði kynntar fyrir kjörnum fulltrúum áður en málið verður afgreitt af hálfu sveitarfélagsins.
Þá undrumst við þá leynd sem farið er fram á um samning sveitarfélagsins við Sýndarveruleika ehf. Óskum við eftir ítarlegum rökstuðningi fyrir þeirri kröfu að upplýsingum um innihald samninga sem fela í sér ráðstöfun eigna sveitarfélagsins og fjárhagsskuldbindingar til langs tíma skuli haldið leyndum. Við óskum meðal annars eftir því að rökstutt sé á hvaða lagagrundvelli þessi krafa um þögn er byggð. Enn fremur hvaða sjónarmið um meðferð persónuupplýsinga réttlæti að leynt sé farið með hvað opinber aðili eins og sveitarfélagið leggi verkefninu og fyrirtækinu til fjárhagslega vegna uppbyggingar þess og starfsemi.
Eins og staðan er nú virðist til þess ætlast að sveitarstjórnarfulltrúar samþykki að sveitarfélagið undirgangist verulegar skuldbindingar og leggi fram umtalsvert fé, án þess fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir. Á sama tíma virðist þess krafist að upplýsingum sé haldið frá almenningi. Við álítum að það sé skylda okkar sem fulltrúa íbúa í sveitarstjórn að fara fram á að framangreindum spurningum sé svarað og að fullnægjandi upplýsingar séu veittar um málið, þannig að ekki séu lagðar hömlur á að við getum rækt skyldur okkar gagnvart íbúum sveitarfélagsins þegar verið er að ráðstafa eignum og fjármunum þess.
Bjarni Jónsson VG og óháðum
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir K - lista

Engum gögnum hefur verið haldið frá fulltrúum í byggarráði varðandi samninga við Sýndarveruleika ehf. Samningurinn sem um ræðir var samþykktur á fundi ráðsins 2. mars s.l. án athugasemda fulltrúa minnihlutans í sveitarstjórn. Í vinnsluferli samningsins komu aldrei fram efasemdir eða athugasemdir frá fulltrúum minnihlutans hvort umræddur samningur stæðist lög og verður það að teljast sérstök vinnubrögð að taka þátt í vinnslu á umræddum samningi og koma svo eftir að hafa samþykkt umræddan samning og gagnrýna innihald hans.
Stefán Vagn Stefánsson B-lista
Sigríður Svavarsdóttir D-lista

Bjarni Jónsson óskar bókað:
Öll málsmeðferð er á ábyrgð meirihluta sveitarstjórnar.

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir óskar bókað:
Málið er enn á vinnslustigi og ég tel eðlilegt að spyrja spurninga.
Samþykkt var að gera fundarhlé kl. 10:33.
Fundi fram haldið kl. 11:00.

3.Beiðni um umsögn vegna meintrar ólögmætrar stjórnsýslu sveitarfélagsins varðandi samninga við Sýndarveruleika ehf

Málsnúmer 1804017Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dagsett 27. mars 2018 þar sem óskað er eftir umsögn Sveitarfélagsins Skagafjarðar um efni kvörtunar sem ráðuneytinu barst frá Sigurjóni Þórðarsyni þann 23.mars s.l.
Byggðarráð samþykkir að fela lögmanni að taka saman umsögn fyrir sveitarfélagið.
Bókun:
Við undirrituð lýsum áhyggjum okkar af málsmeðferð sveitarfélagsins að því er varðar samning þess um uppbyggingu og stuðning við Sýndarveruleika ehf. Teljum við að fjölmörgum spurningum sé ósvarað um verkefnið sem helgast meðal annars af því hversu takmarkaðar upplýsingar hafa verið veittar. Í þessu sambandi bendum við á nauðsyn þess áður en lengra er haldið við afgreiðslu málsins að farið sé vandlega yfir lagaleg atriði, t.d. hvort sveitarfélagið hafi fullnægjandi lagaheimildir til þessara ráðstafana og hvort stuðningur þess feli í sér ólögmæta fjárhagsaðstoð við við einkaaðila í samkeppnisrekstri. Þá þarf sérstaklega að gæta að því að farið sé að leikreglum stjórnsýslulaga, þannig að íbúarnir og fyrirtæki í sveitarfélaginu njóti jafnræðis þegar kemur að ráðstöfun eigna og aðgangi að fjármunum og auðlindum sveitarfélagsins. Við óskum eftir því að þessi atriði verði skoðuð vandlega og niðurstöður athugana verði kynntar fyrir kjörnum fulltrúum áður en málið verður afgreitt af hálfu sveitarfélagsins.

Þá undrumst við þá leynd sem farið er fram á um samning sveitarfélagsins við Sýndarveruleika ehf. Óskum við eftir ítarlegum rökstuðningi fyrir þeirri kröfu að upplýsingum um innihald samninga sem fela í sér ráðstöfun eigna sveitarfélagsins og fjárhagsskuldbindingar til langs tíma skuli haldið leyndum. Við óskum meðal annars eftir því að rökstutt sé á hvaða lagagrundvelli þessi krafa um þögn er byggð. Enn fremur hvaða sjónarmið um meðferð persónuupplýsinga réttlæti að leynt sé farið með hvað opinber aðili eins og sveitarfélagið leggi verkefninu og fyrirtækinu til fjárhagslega vegna uppbyggingar þess og starfsemi.
Eins og staðan er nú virðist til þess ætlast að sveitarstjórnarfulltrúar samþykki að sveitarfélagið undirgangist verulegar skuldbindingar og leggi fram umtalsvert fé, án þess fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir. Á sama tíma virðist þess krafist að upplýsingum sé haldið frá almenningi. Við álítum að það sé skylda okkar sem fulltrúa íbúa í sveitarstjórn að fara fram á að framangreindum spurningum sé svarað og að fullnægjandi upplýsingar séu veittar um málið, þannig að ekki séu lagðar hömlur á að við getum rækt skyldur okkar gagnvart íbúum sveitarfélagsins þegar verið er að ráðstafa eignum og fjármunum þess.

Bjarni Jónsson VG og óháðum
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir K - lista

Bókun:
Engum gögnum hefur verið haldið frá fulltrúum í byggarráði varðandi samninga við Sýndarveruleika ehf. Samningurinn sem um ræðir var samþykktur á fundi ráðsins 2. mars s.l. án athugasemda fulltrúa minnihlutans í sveitarstjórn. Í vinnsluferli samningsins komu aldrei fram efasemdir eða athugasemdir frá fulltrúum minnihlutans hvort umræddur samningur stæðist lög og verður það að teljast sérstök vinnubrögð að taka þátt í vinnslu á umræddum samningi og koma svo eftir að hafa samþykkt umræddan samning og gagnrýna innihald hans.

Stefán Vagn Stefánsson B-lista
Sigríður Svavarsdóttir D-lista

Bjarni Jónsson óskar bókað:
Öll málsmeðferð er á ábyrgð meirihluta sveitarstjórnar.

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir óskar bókað:
Málið er enn á vinnslustigi og ég tel eðlilegt að spyrja spurninga.

4.Eignir Íbúðalánasjóðs til útleigu fyrir sveitarfélögin

Málsnúmer 1804019Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Íbúðalánasjóði, dagsett 27. mars 2018 þar sem sjóðurinn býður sveitarfélaginu að leigja fasteign undir skjólstæðinga sína.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið en afþakkar boðið.

5.Fyrirspurn um Austurgötu 5 á Hofsósi

Málsnúmer 1804033Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 5. apríl 2018 frá Lovísu Heiðrúnu Hlynsdóttur og Þórði Grétari Árnasyni þar sem þau inna eftir því hvort fasteignin Austurgata 5 á Hofsósi sé föl til kaups.
Byggðarráð samþykkir að fasteignin Austurgata 5 á Hofsósi verði auglýst til sölu.

6.Aðalgata 24

Málsnúmer 1803193Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 821. fundar byggðarráðs þann 22. mars 2018 og var sveitarstjóra falið að skoða kaup á fasteigninni Aðalgötu 24.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera tilboð í fasteignina.

7.Ársfundur 2018 Stapi lífeyrisstjóður

Málsnúmer 1804064Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 6. apríl 2018 frá Stapa lífeyrissjóði varðandi fundarboð ársfundar sjóðsins þann 9. maí n.k. í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri.
Byggðarráð samþykkir að Margeir Friðriksson verði fulltrúi sveitarfélagsins og fari með atkvæðisrétt þess á fundinum.

8.Aldursdreifing í sveitarfélögum

Málsnúmer 1804015Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 4. apríl 2018, varðandi myndræna framsetningu á aldursdreifingu íbúa sveitarfélaga fyrir árin 1998 og 2018, sem er að finna á heimasíðu sambandsins.

9.Fundagerðir stjórnar SSNV 2018

Málsnúmer 1801002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 27. fundar stjórnar SSNV frá 6. mars 2018.

Fundi slitið - kl. 11:27.