Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

820. fundur 15. mars 2018 kl. 08:30 - 10:23 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Samþykkt var í upphafi fundar að taka mál númer 1801244 á dagskrá.

1.Ósk um viðræður v/ íþróttamannvirkja og annarrar uppbyggingar tengdri GAV

Málsnúmer 1803095Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 28. febrúar 2018 frá stjórn Hofsbótar ses. þar sem óskað er eftir viðræðum um íþróttamannvirki og aðra uppbyggingu tengda Grunnskólanum austan Vatna á Hofsósi. Á fundinn mættu frá Hofsbót ses. Valgeir Þorvaldsson, Hjalti Þórðarson og Bjarni Þórisson.

2.Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf 2018

Málsnúmer 1803085Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., dagsettur 7. mars 2018 ásamt fundarboði á aðalfund sjóðsins þann 23. mars 2018.
Byggðarráð samþykkir að sveitarstjóri fari með atkvæðisrétt Sveitarfélagsins Skagafjarðar á fundinum.

3.Styrktarsjóður EBÍ 2018

Málsnúmer 1802260Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 21. febrúar 2018 frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands varðandi styrktarsjóð EBÍ 2018. Vakin er athygli á að aðildarsveitarfélögum EBÍ er heimilt að senda inn umsókn í sjóðinn sem er vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna en ekki vegna almennra rekstrarverkefna þeirra. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2018.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að kynna málið fyrir sviðsstjórum.

4.Umsagnarbeiðni þingsályktunartillaga um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga

Málsnúmer 1803098Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 8. mars 2018 frá nefndasviði Alþingis þar sem umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 200. mál.

5.Ósk um tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins í starfshóp um fráveitumál á Hólum í Hjaltadal

Málsnúmer 1803118Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu dagsett 9. mars 2018, þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið tilnefni fulltrúa í starfshóp um fráveitumál á Hólum í Hjaltadal.
Byggðarráð samþykkir að tilnefna Indriða Þór Einarsson sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og Ingvar Pál Ingvarsson verkefnastjóra á veitu- og framkvæmdasvið í starfshópinn.

6.Umsagnarbeiðni frumvarp til laga um Þjóðskrá Íslands

Málsnúmer 1803125Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. mars 2018 frá nefndasviði Alþingis þar sem allsherjar og menntamálanefnd óskar eftir umsögn um frumvarp til laga um Þjóðskrá Íslands, 339. mál.

7.Tillaga - Aðgerðir til að fjölga atvinnutækifærum á Hofsósi

Málsnúmer 1802196Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að bréfi til Byggðastofnunar og ráðuneyti byggðamála varðandi aðgerðir til að fjölga atvinnutækifærum á Hofsósi.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög.

8.Þingsályktunartillaga um Byggðaáætlun 2018-2024 kynning

Málsnúmer 1803133Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dagsettur 13. mars 2018 varðandi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í byggðamálum 2018-2024.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir lengri fresti til umsagnar þar sem tíminn til 21. mars n.k. er ansi knappur.

9.Samstarfssamningar sveitarfélaga beiðni um upplýsingar

Málsnúmer 1801244Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 816. fundar byggðarráðs þann 22. febrúar 2018. Lagt fram bréf dagsett 25. janúar 2018 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi öflun heildstæðra upplýsinga frá sveitarfélögunum í landinu um samstarfssamninga sem starfað er eftir í samstarfi sveitarfélaga og jafnframt leggja mat á hversu vel þeir samræmast kröfum sem gerðar eru til slíkra samninga í lögum. Óskar ráðuneytið eftir upplýsingum um alla núgildandi samstarfssamninga sem Sveitarfélagið Skagafjörður á aðild að og afritum af þeim. Þá er óskað eftir áliti sveitarstjórnar á því hvort endurskoða þurfi ákvæði sveitarstjórnarlaga um samstarf sveitarfélaga og þá að hvaða leyti.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að sjá um að ráðuneytinu verði sendir þeir samstarfssamningar sem sveitarfélagið er aðili að. Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við núverandi ákvæði í sveitarstjórnarlögum um samstarf sveitarfélaga.

10.Fundagerðir stjórnar SSNV 2018

Málsnúmer 1801002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 26. fundar stjórnar SSNV frá 20. febrúar 2018.

Fundi slitið - kl. 10:23.