Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

20. fundur 02. nóvember 2022 kl. 14:00 - 16:25 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Álfhildur Leifsdóttir tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.

1.Málefni Sögufélags Skagfirðinga

Málsnúmer 2210293Vakta málsnúmer

Hjalti Pálsson, formaður Sögufélags Skagfirðinga, kom til fundarins til viðræðu um málefni Sögufélagsins og uppgjör og frágang vegna ritunar Byggðasögu Skagafjarðar.

2.Aðstaða fyrir Siglingaklúbbinn Drangey

Málsnúmer 2210294Vakta málsnúmer

Hallbjörn Björnsson stjórnarmaður í Siglingaklúbbnum Drangey kom til fundarins til viðræðu um húsnæðismál félagsins.

3.Skagafjörður (5716), fjárhagsáætlun 2022, viðauki 4

Málsnúmer 2210264Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2022. Viðaukinn er gerður vegna leiðréttingar efnahagsliða í áætluninni með tilliti til niðurstöðu ársreiknings 2021 og uppreiknings á lánasafni sveitarfélagsins. Einnig er áætlun vegna Flokku ehf. flutt á milli málaflokka.
Byggðarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Útkomuspá 2022

Málsnúmer 2210222Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsleg útkomuspá sveitarfélagsins fyrir árið 2022.
Byggðarráð samþykkir framlagða útkomuspá með tveimur atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Álfhildur Leifsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá við afgreiðslu málsins.

5.Fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2023-2026

Málsnúmer 2208220Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun 2023-2026 til fyrri umræðu.
Byggðarráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun með tveimur atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Álfhildur Leifsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá við afgreiðslu málsins.

Fundi slitið - kl. 16:25.