Fara í efni

Atvinnu- og ferðamálanefnd

04. desember 2007
Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar
Fundur  – 04.12. 2007

Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar, fundur í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, þriðjudaginn 04.12.2007, kl. 13:00.
Fundinn sátu Snorri Styrkársson, Gunnar Bragi Sveinsson, Páll Dagbjartsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson sviðsstjóri sem ritaði fundargerð.   Þorsteinn Broddason sat fundinn undir lið 1.

DAGSKRÁ:

1)      Iðnaðarlóðir í Skagafirði
2)      Þriggja fasa rafmagn
3)      Alice á Íslandi ehf
4)      Tilnefning í starfshóp um endurskoðun rekstrarsamnings skíðasvæðis.
5)      Matarkistan Skagafjörður
6)      Tjaldstæði í Varmahlíð
7)      Fjárhagsáætlun 2008
8)      Önnur mál
 
AFGREIÐSLUR:
1)      Iðnaðarlóðir í Skagafirði
Áskell Heiðar og Þorsteinn gerðu grein fyrir vinnu sinni varðandi aðkomu sveitarfélagsins að iðnaðaruppbyggingu í Skagafirði.
 
2)      Þriggja fasa rafmagn
Erindi vísað frá Byggðarráði til afgreiðslu.  Nefndin felur sviðsstjóra að kanna stöðu þriggja fasa rafmagnstenginga í samvinnu við landbúnaðarnefnd og svara erindinu í framhaldi af því.
 
3)      Alice á Íslandi ehf
Sviðsstjóra falið að óska eftir frekari upplýsingum um málið frá fyrirtækinu.
 
4)      Tilnefning í starfshóp um endurskoðun rekstrarsamnings skíðasvæðis.
Erindi vísað frá Félags- og tómstundarnefnd.  Nefndin tilnefnir Áskel Heiðar, sviðstjóra í starfshópinn.
 
5)      Matarkistan Skagafjörður
Rætt um næstu skref varðandi aðkomu sveitarfélagsins að verkefninu Matarkistan Skagafjörður.
 
6)      Tjaldstæði í Varmahlíð
Sviðsstjóra falið að auglýsa eftir aðilum til að taka að sér rekstur á nýju tjaldstæði við Reykjarhól í Varmahlíð.
 
7)      Fjárhagsáætlun 2008
Nefndin gerir ekki athugasemdir við fjárhagsáætlun fyrir aðra umræðu.
 
8)      Önnur mál
 
 
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:00