Fara í efni

Atvinnu- og ferðamálanefnd

22. nóvember 2006
Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar
Fundur  – 22.11. 2006

Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar, fundur í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, miðvikudaginn 22.11.2006, kl. 13:00.
 
Fundinn sátu Snorri Styrkársson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bjarni Egilsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson sviðsstjóri sem ritaði fundargerð. 

DAGSKRÁ:

1)      Atvinnuþróunarstarf
2)      Háhraðatengingar í dreifbýli
3)      Önnur mál
 
AFGREIÐSLUR:
1)      Atvinnuþróunarstarf
Atvinnu- og ferðamálanefnd samþykkir að ganga til frekari viðræðna við Skagafjarðarhraðlestina með eftirfarandi að markmiði:
a) að mynda samstöðu með sveitarfélagi og atvinnulífi í Skagafirði.
b) að stuðla að nýsköpun og framþróun í fyrirtækjarekstri í Skagafirði.
c) að velja og þróa áfram ákveðin verkefni sem eru vel fallin til þess að stuðla að uppbyggingu í Skagafirði.
d) að mynda starfshóp að uppbyggingu atvinnulífs í Skagafirði
 
Sveitarfélagið legði til verkefnastjóra að verkefninu og greiddi launakostnað vegna hans en atvinnulífið í Skagafirði stofnaði sjóð atvinnulífsins í Skagafirði sem myndi fjármagna annan kostnað við verkefnið.
 
2)      Háhraðatengingar í dreifbýli
Árni Gunnarsson og Hrund Pétursdóttir frá Leiðbeiningarmiðstöðinni komu til fundar og kynntu munnlega frumdrög að skýrslu um uppbyggingu háhraðatenginga í dreifbýli í Skagafirði.  Áætlað er að lokaskýrsla liggi fyrir 15. des. n.k.
 
3)      Önnur mál
Voru engin.
 
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:00