Fara í efni

Atvinnu- og ferðamálanefnd

13. desember 2005
Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar
Fundur  – 13.12. 2005

Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar, fundur í Ráðhúsinu á Sauðárkróki,
þriðjudaginn 13.12.2005, kl. 13:00.

DAGSKRÁ:

 
1)  Kynningaráætlun
2)      Rannsóknir og kynningarefni vegna iðnaðarlóða við Sauðárkrók
3)      Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð – starf ársins
4)      Önnur mál.
 
 
AFGREIÐSLUR:
 
1.      Kynningaráætlun
Sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi nýtt kynningarefni fyrir sveitarfélagið.  Stefnt að því að það komi út snemma á nýju ári.
 
2)      Rannsóknir og kynningarefni vegna iðnaðarlóða við Sauðárkrók
Sviðsstjóri lagði fyrir nefndina kynningarefni vegna iðnaðarlóða við Sauðárkrók.
 
3)      Upplýsingamiðstöð ferðamála á Norðurlandi vestra – starf ársins
Jakob Frímann Þorsteinsson forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar ferðamála á Norðurlandi vestra kom á fundinn og lagði fram til kynningar samantekt um starfsemi stöðvarinnar á árinu.
 
4)      Önnur mál.
Voru engin.
 
 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:00
Fundinn sátu Gísli Sigurðsson, Jón Garðarson, Bjarni Jónsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson sem ritaði fundargerð.  Þorsteinn Broddason sat fundinn undir lið 1 og 2 og Jakob Frímann Þorsteinsson sat undir lið 3.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.