Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

5. fundur 24. október 2022 kl. 16:30 - 18:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Sigurður Bjarni Rafnsson varaform.
  • Auður Björk Birgisdóttir aðalm.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
Dagskrá
Samþykkt að taka upp með afbrigðum mál nr. 2210244 Listasafn Skagfirðinga - Gjaldskrá 2023.

1.Héraðsskjalasafn Skagfirðinga - Gjaldskrá 2023

Málsnúmer 2210239Vakta málsnúmer

Tekin fyrir gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir 2023. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 7,7% hækkun frá fyrra ári. Vinnslugjald hækkar umfram 7,7% eða úr 5.500 kr pr. klst í 8.100 kr pr. klst. Er það gert til að samræmast tímagjaldi fyrir sömu þjónustu hjá Þjóðskjalasafni Íslands. Nefndin vísar gjaldskránni til byggðaráðs til samþykktar.

2.Héraðsbókasafn Skagfirðinga - Gjaldskrá 2023

Málsnúmer 2210238Vakta málsnúmer

Tekin fyrir gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga fyrir 2023. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 7,7% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðaráðs.

3.Listasafn Skagfirðinga - Gjaldskrá 2023

Málsnúmer 2210244Vakta málsnúmer

Tekin fyrir gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga fyrir 2023. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 7,7% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðaráðs.

4.Fjárhagsáætlun 2023 - málaflokkur 05 - Menningarmál

Málsnúmer 2210237Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun 2023 og vísar henni til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

5.Fjárhagsáætlun 2023 - málaflokkur 13 - Atvinnu- og kynningarmál

Málsnúmer 2210236Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun 2023 og vísar henni til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

Fundi slitið - kl. 18:00.