Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

4. fundur 26. september 2022 kl. 16:30 - 18:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Sigurður Bjarni Rafnsson varaform.
  • Auður Björk Birgisdóttir aðalm.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Jólin heima 2022 - beiðni um styrk

Málsnúmer 2209223Vakta málsnúmer

Tekin fyrir styrkbeiðni frá Jóhanni Daða Gíslasyni, dagsett 16.09.2022, vegna jólatónleikanna Jólin heima sem fyrirhugað er að halda í Miðgarði þann 10. desember nk.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar erindið og fagnar framtakinu en getur því miður ekki styrkt verkefnið að þessu sinni.

2.Áfangastaðaáætlun Norðurlands - forgangsverkefni

Málsnúmer 2209280Vakta málsnúmer

Teknar fyrir tillögur að forgangsverkefnum fyrir Áfangastaðaáætlun Norðurlands sem auglýst var eftir þann 14.09.2022. Forgangslistinn er uppfærður árlega.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að setja eftirfarandi forgangsverkefni í Áfangastaðaáætlun Norðurlands.

Staðabjargarvík
Hólar í Hjaltadal
Austurdalur
Tindastóll
Glaumbær
Kakalaskáli

Sigurður Bjarni Rafnsson vék af fundi undir þessum lið.

3.Fjárhagsáætlun 2023

Málsnúmer 2209281Vakta málsnúmer

Umræður um fjárhagsáætlun 2023.

4.Samráð; Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um menningarminjar - aldursfriðun

Málsnúmer 2209291Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynninga drög að breytingu á lögum um menningarminjar - aldursfriðun.

Fundi slitið - kl. 18:30.